Freising
Um daginn fékk ég mér hjólatúr upp í Freising sem er hér norður af München. Freising er líklegast einna frægast fyrir að þar er elsta starfandi brugghús í heiminum, Weihenstephan.
Leiðin frá München liggur í gegnum dimman skóg meðfram ánni Isar. Á einstaka stað var þó hægt að sjá eitthvað annað en tré og þá glitti oftast í nakta þjóðverja sem voru að sóla sig við ánna. Af einhverjum orsökum virðist þjóðverjinn hreinilega ekki vera sáttur nema hann fái að liggja allsnakinn úti í sólinni.
Eftir um það bil 45 km. hjólatúr komst ég loks á áfangastað.
Það kemur á óvart hvað getur verið gaman að hjóla þegar maður er ekki að glíma við brekkur, mótvind og rigningu eins og maður er vanur að heiman. Svo er auðvitað ansi þægilegt að geta hoppað upp í lestina ef maður nennir ekki að hjóla aftur heim.