Bad Orb - die Stadt im Park

Um síðustu helgi lögðum við Ásta land undir fót og keyrðum norður í sveitir landsins, nánar tiltekið til skemmti- og gleðibæjarins Bad Orb. Ferðinni var heitið á risastórt lúðrasveitarmót sem haldið er þar annað hvert ár. Þangað komu yfir 20 lúðrasveitir frá hinum og þessum löndum (en þó flestar frá Þýskalandi).
Um sögu bæjarins veit ég fátt annað en að meðalaldur íbúa er handan grafarbakkans.

Lúðrasveitin Svanurinn var að fara þarna í þriðja sinn núna í haust. Þökk sé skyldleika við stjórnanda Svansins tókst mér að troða mér þarna inn. Það má auðvitað ekki gleymast að ég er alvanur básúnuleikari, eins og sést á þessari mynd af okkur Finnboga, þannig að það var gríðarlegur styrkur fyrir hljómsveitina að fá inn mann sem hafði ekki spilað á básúnu í mörg ár.

alvanur.jpg

Þessi ferð var í alla staði frábær. Það var auðvitað rosalega gaman að hitta krakkana í Svaninum. Jafnvel þó ég hafi varla þekkt nokkurn mann þarna þá small ég strax inn á fyrsta bjór. Það eru greinilega bara ákveðin gerð af fólki sem tekur þátt í þessum félagsskap :)
Stemmningin í bjórtjaldinu var auðvitað rosalega allan tímann. Band hússins var byrjað að spila í kringum hádegi og svo endaði kvöldið á því að ferskustu lúðrasveitirnar voru komnar upp á borð til að skemmta sér og öðrum.

olvun.jpg

Auðvitað var svo löng og góð skrúðganga, en því miður þá var hvorki rok né rigning í þetta skiptið eins og maður á að venjast 1. maí og 17. júní á Íslandi.

gangan.jpg

Eftir góða helgi, 8 vínarsnitzel, 7 bratwurst, 15 lítra af bjór, knödel með rauðkáli og 4 kíló af frönskum kartöflum héldum við svo heim á leið á sunnudagskvöldið.

Bjórinn í ferðinni mun svo fá nánari umfjöllun undir liðnum “Bjór dagsins” á allra næstu dögum.

6 athugasemdir »

  1. Bjarki said,

    september 11, 2006 @ 8:17 pm

    Þú tekur þig náttúrulega gríðarlega vel út með básúnu í hönd.

  2. Immerda said,

    september 12, 2006 @ 12:03 pm

    Í básúnu hann mikið blæs
    og bjórinn rennur líka
    heyrist mikið skrölt og hvæs
    - hann komst þar inn fyrir klíku.

    O’zapft is!
    Immerda.

  3. Immerda said,

    september 12, 2006 @ 3:39 pm

    Athugasemd.
    Eins og glögglega má sjá er vísan hér að ofan ekki rétt kveðin. Ætli ég láti ekki athugulum lesendum eftir að finna það sem ekki samræmist ströngustu bragfræðireglum.

  4. f.willy said,

    september 12, 2006 @ 9:23 pm

    er ekki til einhver búttlegg upptaka af básúnuleiknum?

  5. Brynjar said,

    september 13, 2006 @ 11:59 am

    Nú er ég ekki viss. Það var vissulega einhver vídeovél á lofti þarna, en ég er ekki viss um að minn undurfagri básúnuleikur hafi náðst á filmu. Einnig vita þeir sem til þekkja (spurðu Bjarka) að maður verður eiginlega að vera á staðnum til að upplifa stemmninguna almennilega.
    En til að gefa þér einhverja hugmynd hvernig þetta var hjá mér, bendi ég á þessa ræmu hér, þetta er svona það sem kemst næst mér.

  6. Guðný flauta said,

    september 18, 2006 @ 3:56 pm

    Takk fyrir síðast Brynjar og Ásta
    Geggjað stuð að hafa ykkur með í Bad Orb.
    Gaman að lesa pistilinn um ferðina :)

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment