Samfélagslegt aðhald

Óvíða veitir samfélagið manni jafn mikið aðhald og í Þýskalandi. Hér eru sjálfboðaliðalöggur á hverju götuhorni sem passa uppá að allir fari að settum lögum og reglum.

Um síðustu helgi þegar við fórum til Bad Orb, þá lagði ég bílnum mínum ekki alveg nógu vel. Án þess að það truflaði nokkurn þá stóðu svona 15 cm. af bílnum inn í innkeyrslu á húsinu á móti því sem ég var að fara inn. Bílinn var samt engan vegin að minnka möguleika eiganda innkeyrslunnar á því að nota hana. Ég ákvað því að klára að tæma dótið úr bílnum, fara með það upp á hótelherbergi, og færa bílinn að því loknu.

Um það bil 5 mínútum síðar kom ég niður aftur og ætlaði að færa bílinn. Þegar ég kom að honum sá ég að það var kominn miði á framrúðuna. Sekt? Nei, ekki var það svo gott. Þarna hafði eigandi innkeyrslunnar farið og sótt einn miða úr einkasafninu sínu og skellt á rúðuna mína.

Aðrar eins svívirðingar og ruddaskap man ég ekki eftir að hafa séð áður á prenti:

ars.jpg

Í þýðingu hljómar þetta svona:

   Þetta er ekki SEKTARMIÐI en fengi ég einhverju ráðið,
   fengjuð þér tvo slíka. 

   Vegna þess hve þér lögðuð bílnum á fábjánalegan,
   tillitslausan og klaufalegan hátt tókuð þér pláss sem
   annars hefði dugað 20 ösnum, 2 fílum, 1 geit og heilli
   hersveit af Putum!

   Hvers vegna fáið þér þennan miða? Til að í framtíðinni
   hugsið þér einnig af og til um aðra, ekki bara yður
   sjálfa.

   Auk þess þoli ég alls ekki hortuga, sjálfselska og
   grunnhyggna bílstjóra - en þeim hópi tilheyrið þér
   án nokkurs efa.

   Ég kveð og óska yður bráðrar gírkassabilunar - kl. 22
   á hraðbrautinni!

   Auk þess óska ég þess að 1000 úlfaldaflær vitji
   endaþarms yðar!
                       Þýðandi: Finnbogi Óskarsson

Þarna sést vel hvernig samfélagið greip tímanlega inní þegar ég stóð mig ekki nógu vel. Ég á því manninum í þessu húsi mikið að þakka, hér eftir mun ég vanda mig betur þegar kemur að því að leggja í stæði svo ekki sé hægt að saka mig um hortugheit og sjálfselsku.

8 athugasemdir »

  1. Ellert Slagverkjaleikari said,

    september 15, 2006 @ 12:08 pm

    Annaðhvort er þessi aðili sem þarna skrifar alveg fáránlega geðveikur eða einhver þýskumælandi svanur hefur tekið sig til og skrifað svona líka geðveikislega fyndið grínbréf þegar hann sá þig leggja þarna. Gott ef ég hló ekki bara úr mér flensuna þegar ég las þetta, en ég hef ekki hlegið svona mikið síðan ég var smástelpa.

    Takk fyrir síðast,

    Ellert S Breiðfjörð Sigurðarson,
    Slagverkur

  2. Brynjar said,

    september 15, 2006 @ 12:15 pm

    Takk sömuleiðis fyrir síðast.

    Mig grunar að þarna sé á ferðinni fáránlega geðveikur íbúi í Bad Orb. Líklegast á hann svona á miða lager frá því einhver lagði hestvagninum sínum skakkt fyrir utan húsið hann haustið 1931. Síðan þá hefur hann setið út í glugga og beðið eftir rétta tækifærinu… sem kom svo þegar ég, þessi hortugi, grunnhygni og sjálfselski bílstjóri, lagði fyrir utan hjá honum.

  3. Finnbogi said,

    september 15, 2006 @ 2:20 pm

    Þakkaðu bara fyrir að samfélagið skuli hafa gripið í taumana áður en illa fór.

  4. f.willy said,

    september 15, 2006 @ 6:20 pm

    Það er samt fallega gert af honum að þéra þig (ef hann hefði sleppt því þá hefði fyrst keyrt um þverbak í dónaskapnum).

  5. Brynjar said,

    september 15, 2006 @ 8:13 pm

    Mér hefði nú sárnað all verulega hefði ég verið þúaður í þessu bréfi.

  6. Finnbogi said,

    september 16, 2006 @ 12:51 pm

    Þetta hefur væntanlega verið gamall maður þýðverskur sem veit að þúun ógildir miðann.

  7. Elfa trompet said,

    september 17, 2006 @ 6:25 pm

    Hahaha… þetta er alveg stórmerkilegt!
    Þjóðverjar eru engum líkir…

    takk fyrir síðast,
    kv, Elfa Dröfn trompet

  8. Sögur af Mjaðarvöllum » Jólasnjórinn said,

    nóvember 4, 2006 @ 12:52 pm

    […] Áhugafólk um lagningu bíla sér þarna eina af dauðasyndunum. Það er auðvitað stranglega bannað að leggja bílum í portinu. Nú hefði komið sér vel að vera búinn að fjölfalda áminninguna sem ég fékk um daginn. […]

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment