Münchener Kindl Weissbier

Bjór dagsins er að þessu sinni hveitibjórinn frá Hofbräu brugghúsinu hér í borg.

Flestir hafa heyrst minnst á Hofbräuhaus. Það er líklegast eitt frægasta brugghús í heiminum. Ef maður kemur frá Asíu og ferðast um evrópu á fjórum dögum þá er alltaf komið við í Hofbräuhaus og ein eða fleiri krúsir drukknar. Þökk sé þessari miklu frægð, þá er þetta líklegast einn leiðinlegasti staður til að fara á í München, þarna er ekki þverfótandi fyrir ferðamönnum að taka myndir og flissa eins og smástelpur af öldrykkju.

Árið 1589 var þetta fræga brugghús stofnað þegar hertoginn Wilhelm V. var ekki nógu sáttur við þann bjór sem var hægt að fá á þeim tíma. Hann ákvað því að stofna sitt eigið brugghús til að brugga almennilegan bjór.

Bjór dagsin er eins og áður sagði hveitibjórinn frá Hofbräu, Münchener Kindl Weissbier. Þetta er ljós hveitibjór 5.1% að styrkleika.

kindl_weissbier.jpg

Bjórinn er ekki bragðmikill, en það vottar fyrir léttu ávaxtabragði og þá örlítið yfir í banana. Þar með líkist hann frænda sínum Paulaner sem er þekktur fyrir ríkt bananabragð. Við fyrsta sopa fann ég örlítið rammt bragð sem mér fannst ekki nógu gott, það dofnaði þó við frekari drykkju. Þegar líða tók á glasið varð bjórinn alltaf minna og minna spennandi og jaðraði við vatnsbragði af honum undir lokin. Þess ber að geta að þetta var ekki sama vatnsbragðið og vill koma þegar yfir 5 lítrar af bjór eru drukknir í einum rykk.

Ég get því ekki mælt með þessum bjór til frekari drykkju. Hér er til nóg af góðum hveitibjór sem ég mun taka fram yfir þennan.

Leave a Comment