Fótbolti

Eins og einhverjir vita þá er HM í fótbolta haldið í Þýskalandi þessa dagana. Á Olympíusvæðinu er búið að koma fyrir risa flatskjá þar sem allir leikir eru sýndir. Á undan hverjum leik er svo boðið upp á skemmtiatriði þar sem þýskur húmor ræður ríkjum. Ekki þarf að taka fram að þarna eru líka sölubásar frá helstu brugghúsum á svæðinu þar sem hægt er að fá bjór og aðra þjóðlega rétti.

Ég verð að segja að mestu vonbrigðin hingað til í þessari keppni séu að gamla kempan Maradonna hafa ekki verið valin í lið Argentínumanna. Við hefðum verið að horfa á miklu skemmtilegri bolta ef hann hefði fengið að spila með. Spurning hvort hann komi sterkur inn eftir 4 ár?

Hér er smá myndband sem sýnir þennan risaskjá.

2 athugasemdir »

  1. Þröstur said,

    júní 16, 2006 @ 8:17 am

    Af hverju tókstu ekki video af markinu??? Hálf slappt að sjá þetta bara svona ;)

  2. Valur said,

    júní 16, 2006 @ 9:15 pm

    Af leiknum í dag að dæma þurfa þeir tæpast á Maradona að halda :-)

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment