Licher - Premium Pilsner
Bjór dagsins er að þessu sinni er Permium Pilsner frá Licher brugghúsinu sem er hér norður í sveit. Í þetta skiptið er bjór dagsins ekki drukkinn samhliða ritun greinar heldur var hann drukkinn fyrir nokkrum dögum, nánar tiltekið á lúðrasveitarmótinu í Bad Orb helgina 8. til 10. september.
Sögu þessa brugghús þekki ég ekki neitt, en ég er búinn að innbyrða nokkuð marga lítra af þessum bjór og get því aðeins fjallað um hann.
Áður en lengra er haldið verður að geta þess að því miður var bjórinn borinn fram í einhverjum þeim allra minnstu dvergkrúsum sem ég hef nokkurn tímann séð. Mig grunar að þetta hafi 0.3 lítra krúsir eða eitthvað enn minna. Þetta er eitthvað sem ég ekki skil. 0.5 lítra krúsir rétt sleppa, en auðvitað slær ekkert út líterskrúsina! Þegar verið er að drekka úr svona fingurbjörgum þarf svo svakalegan fjölda af krúsum fyrir hvern drekkandi einstakling og maður er alltaf að skima eftir nýrri krús.
Bjórinn sem boðið uppá í bjórtjaldinu í Bad Orb var Licher, Preminum Pilsner. Þetta er ljós pilsner 4.9% að styrkleika. Við fyrsta sopa finnst strax að maður er kominn töluvert norður fyrir München. Bjórinn er örlítið rammur, en þó ekki það mikið að það skemmi eitthvað fyrir. Almennt var Pilsinn frá Licher frekar bragðdaufur og skilur ekki eftir sig mikið eftirbragð. En hann má eiga það að hann var mjög léttur og lenti ég því aldrei í því að verða saddur af drykkju, eins og vill gerast þegar þyngri bjórar eru drukknir. Það var því alltaf pláss fyrir einn enn sem er mjög gott.
Það finnst líka langar leiðir að Licher menn, eins og flestir þýsk brugghús, halda í heiðri þýsku Hreinleikalögin sem segja til um hvað bjór má innihalda. Daginn eftir bjórdrykkjuna spratt maður eldhress á fætur og langaði strax í annan. Þessi Hreinleikalög eru eitthvað sem íslensku bjórframleiðendurnir ættu að skoða í stað þessa að fylla bjórinn af maís, andoxunarefnum og fleiri óþverra sem á ekki heima þar.
Finnbogi said,
september 19, 2006 @ 10:00 am
Náðirðu nokkuð mynd þar sem munnstykki trompetgúrúsins sést?
Brynjar said,
september 19, 2006 @ 10:20 am
Nei, því miður. Enda var munnstykkið svo lítið að það hefði varla náðst á mynd.
Freysi said,
september 19, 2006 @ 11:36 am
“Það finnst líka langar leiðir að Licher menn, eins og flestir þýsk brugghús, halda í heiðri þýsku Hreinleikalögin sem segja til um hvað bjór má innihalda. Daginn eftir bjórdrykkjuna spratt maður eldhress á fætur og langaði strax í annan”
Nú er þetta ástæðan? Mig var farið að gruna að það væri búið að vatnsblanda bjórinn. Ég hef sjaldan verið jafn hress eftir jafn stífa drykkju.
Brynjar said,
september 19, 2006 @ 11:40 am
Það er ótrúlegt hvað hreinleiki bjórsins hefur mikið að segja. Ég get til dæmis drukkið 2-3 lítra af Augustiner bjór hérna í München og mætt hress og kátur til vinnu daginn eftir án þess að vinnugeta sé verulega skert.
Eftir 3 lítra af volgum Víking í dós er ég kominn með hausverk og þynnku áður en ég fer að sofa, auk þess sem ég vakna með vínleiða og heiti því að smakka aldrei áfengi framar í lífinu.
Rúnar Óskarsson said,
september 20, 2006 @ 11:44 am
Takið eftir kommenti frá Brynjari, „án þess að vinnugeta sé VERULEGA skert”. Það þýðir væntanlega að hún sé eitthvað skert.
Ætli vinnuveitandinn viti af þessu…
Annars get ég verið sammála því að hreinleikalögin eru snilld og núna fer loksins að koma á markaðinn íslenskur bjór sem er uppfyllir kröfur okkur um E-efna, sykur- og maíslausan bjór. Nú þurfa bara íslenskir veitingahúsaeigendur að læra að skenkja bjór í köld glös og þá er aldrei að vita nema bjórmenningin fari að blómstra.
Brynjar said,
september 20, 2006 @ 11:47 am
Svo kannski einn daginn fara þeir að skola glösin með vatni áður en bjórinn er látinn freyða ofan í glasið. Vonandi gerist það í sama pakka og þeir fara að bjóða upp á köld glös.
Finnbogi said,
september 26, 2006 @ 12:03 am
Tja, ég held að Þjóðverjarnir viti bara ekki betur. Prófaðu bara að bjóða þeim froðubjór úr funheitu glasi með sápuleifum, nýkomnu úr uppþvottavélinni (à la Hansen) og athugaðu hvort þeir sjái ekki ljósið!