Oktoberfest lokið

Síðasta þriðjudag lauk Oktoberfest. Núna verður aftur hægt að nota almenningssamgöngukerfið hér í borg án þess að allt sé fullt af öfurölvi hátíðargestum. Það verður líka gott að fá aftur gömlu góðu lestargangafýluna í stað þessarar römmu áfengisstybbu sem hefur legið yfir í þeim vögnum sem ganga upp á Engin.

Síðasta föstudag bauð heiðurskonsúll Ísland í München, Herr Schwarz, öllum íslendingum á stór Mjaðarvallasvæðinu til stórveislu í Hofbräu tjaldinu. Af því tilefni var þessi mynd tekin:

asta_og_bo.jpg

Vegna þess hve mikill bjór var í boði, þá eru allar hinar myndirnar á þessu formi hér (hreyfðar og hristar):

breidur.jpg

Ef vel er að gáð má sjá móta fyrir mér að syngja eitthvað skemmtilegt þýskt stuðlag (líklegast 99 Luftballons).

Hér er svo ein sem sýnir yfir bjórtjaldið hjá þeim Hofbräu mönnum:

tjaldid.jpg

Á svæðinu eru 14 svona “tjöld”. Þau eru reyndar miklu nær því að vera stór hús en tjöld. Hvert þeirra tekur á bilinu 5.000 - 10.000 manns í sæti. Samtals eru í kringum 100 þúsund “drekkandi/étandi/ælandi/dansandi” sæti í þessum tjöldum. Allan tímann eru tjöldin svo stútfull að erfitt er að fá sæti nema koma snemma morguns (sem er frekar erfitt þegar maður þarf líka að vera í vinnunni).

Þetta árið komu um það bil 6.5 milljónir gesta á hátíðina og drukku þeir álíka marga lítra af bjór þessa 16 daga sem hún stóð. En betur má ef duga skal! Hvar eru allir bjórdrykkjumennirnir sem ég þekki? Af hverju komu þeir ekki á svæðið og drukku sig í barndóm? Finnst engum bjór góður lengur eða hvað?

6 athugasemdir »

  1. Finnbogi said,

    október 5, 2006 @ 11:58 pm

    Ef dæmigerð mynd lítur svona út er ég ekki hissa á að Ásta skuli hafa verið heilsutæp á þriðjudaginn…

  2. Rúnar Óskarsson said,

    október 6, 2006 @ 10:17 pm

    Nei, okkur Mörlöndum þykir bjór ekkert sérstaklega góður. Þ.e. ekki alvöru bjór. Við erum meira fyrir að drekka Viking og Egils Gubb (E-222).

  3. f.willy said,

    október 7, 2006 @ 5:45 pm

    Hvað meinarðu með “þessarar römmu áfengisstybbu”, ætti þetta ekki frekar að vera “fersk hreinleikalagabruggaðs-bjórangan”?

  4. Bjarki said,

    október 10, 2006 @ 7:28 pm

    Á maður að trúa því að meðalneyslan hafi bara verið 1 lítri á mann? Varstu eitthvað slappur?

  5. Brynjar said,

    október 10, 2006 @ 8:09 pm

    f.willy:
    Jú, auðvitað meinti ég “fersk hreinleikalagabruggaðs-bjórangan”. Stundum mismælir maður sig í hita leiksins.

    Bjarki:
    Gallinn við Oktoberfest er að helmingurinn af svæðinu er risastórt tivolí. Liðið sem fer bara þangað til að leika sér (börn og gamalmenni) drekkur engan bjór og skemmir því í raun talninguna. Auðvitað á bara að telja drekkandi einstaklinga, hinir eru gagnlausir.
    Sjálfur ræð ég oftast ekki við meira en 5 lítra af bjór í einu þannig að, já, ég var slappur, ég neyðist til að játa það hér og nú.

  6. Ásdís said,

    október 15, 2006 @ 9:13 pm

    Ja hérna, þetta hefur bara verið allsherjar Librapartý þarna hjá ykkur :-D

    ég verð að segja að þú ert svaka flottur í tauinu þarna ;)

RSS feed for comments on this post · Slóð fyrir tilvísun

Leave a Comment