7 mars 2008 kl. 11:36 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins er að þessu sinni Altenmünster - Urig Würzig sem kemur frá Allgäuer brugghúsinu sem er staðsett í bænum Kempten, suðvestur af München.
Brugghúsið á sér rúmlega 600 ára sögu, stofnað árið 1394 af Keltum sem brugguðu sér sterkan bjór til að ylja sér með (og svala sárasta þorstanum).
Á hverju ári heldur brugghúsið hátíðarviku þar sem menn klæðast Lederhosen og gestir koma víða að og drekka í sig menninguna.
Af Altenmünster bjórunum eru bruggaðar 6 gerðir:
- Urig Würzig
- Hopfig Herb
- Jubelbier
- Maibock
- Winterbier
- Hefe Weissbier
Brugghúsið bruggar reyndar fleiri tegundir, en þær eru ekki bruggaðar undir Altenmünster merkinu.
Bjór dagsins er eins og áður segir Urig Würzig . Þetta er ljós lager bjór, 4.9% að styrkleika. Brugghúsið kynnir bjórinn með því að þetta sé akkúrat eins og sá bjór sem bruggaranum líkar. Hver sá sem hefur séð bruggmeistara sem starfar í Bæjaralandi veit að þetta eru góð meðmæli.
Þegar bjórnum er hellt í glas kemur í ljós falleg froða sem er samt nokkuð laus í sér. Vegna þess er hún er hún frekar fljót að falla aftur til jarðar. Hún fellur þó ekki svo harkalega niður að bjórinn líti út eins og bjór í veitingahúsi/knæpu á Íslandi.
Við fyrsta sopa kemur strax í ljós að hér er á ferðinni góður alvöru bjór. Hann er nokkuð bragðmildur en býður þó upp á örlítið dekkra bragð en margir ljósir bjórar sem maður drekkur. Gosið er nokkuð fínt í sér og minnir í margt á pilsner froðu sem gefur bjórnum skemmtilegt einkenni. Ef eitthvað bragð stendur sérstaklega uppúr, þá eru það humlarnir.
Eftirbragðið er örlítið rammt án þess þó að skemma fyrir, nema síður sé. Fyrsti sopinn kallar strax á þann næsta og þarnæsta. Skyndilega þarf nýja fyllingu á glasið.
Með þessum bjór get ég hiklaust mælt með. Hann er léttur í áfengisprósentu og hentar því eflaust mjög vel til magndrykkju (> 4 lítrar). Þar sem hann er bruggaður samkvæmt þýsku hreinleikalögunum frá 1516 þá geri ég ekki ráð fyrir öðru en maður stígi óskaddaður frá borði daginn eftir.
Tengill
30 janúar 2008 kl. 9:26 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins að þessu sinni er Erdinger Urwiesse sem kemur frá Erdinger Weißbräu brugghúsinu staðsettu í smábænum Erding í úthverfi Münchenar.
Erdinger Weißbräu var stofnað árið 1886. Eins og nafnið gefur til kynna liggur sérhæfingin í hveitibjórum. Ólíkt mörgum öðrum brugghúsum þá er allur bjórinn þeirra bruggaður í brugghúsinu í Erding. Það er því ekki hægt að fá átöppunarleyfi fyrir bjórinn annarsstaðar. Bjórinn er fluttur út til yfir 70 landa og er brugghúsið stærsti framleiðandi hveitibjórs í heiminum í dag.
Í dag framleiðir brugghúsið 9 sortir af hveitibjórum, þar af er ein án áfengis og ætti því varla að telja með.
Á Íslandi hefur lengi vel verið hægt að kaupa Erdinger Mit feiner Hefe, ljós hveitibjór sem rennur ljúft niður. Það er sá bjór sem maður fær í brugghúsinu ef maður er ekki með neinar séróskir.
Bjór dagsins er að þessu sinni glæný bjórtegund frá Erdinger Weißbräu, Erdinger Urweisse. 11. desember síðastliðinn var bjórnum hellt á fyrstu flöskurnar upp í Erding. Bjórinn er 5.2% að styrk og er auðvitað bruggaður samkvæmt Þýsku hreinleikalögunum frá 1516.
Bjórinn er fallega gulur á lit með þéttu gruggi. Froðan fór nokkuð úr böndunum þegar ég hellti í glasið en var þó fljót að komast á réttan stað aftur.
Fyrsti sopinn er ljúfur, en ekki eins spennandi og ég hafði vonast eftir. Ýmis brögð koma þó fram, en ekkert þeirra er neitt sérstaklega áberandi, kannski einhver blanda af sveskjum, banana og birki (og jafnvel smá af viðbrenndu knödeli). Eftirbragðið er örlítið rammt og kallar ekki grimmt í næsta sopa. Það er helst að mann langi í einhvern annan bjór til að hreinsa munninn. Bjórinn er nokkuð léttur í munni, ólíkt því sem maður á að venjast með hveitibjóra.
Erdinger Urweisse fær ekki háa einkunn hjá mér. Það vantar miklu meiri fyllingu og þéttara bragð. Einnig er afleitt ef fyrsti sopinn kallar ekki strax á þann næsta. Ég get því ekki mælt með þessu nýja spili Erdinger manna.
Tengill
24 október 2007 kl. 9:59 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins kemur að þessu sinni frá Friesische brugghúsinu í smábænum Jever í norður Þýskalandi. Bæinn þekki ég ekki af neinu öðru en Jever bjórnum sem er bruggaður þar, en það má nú sjálfsagt finna þarna nokkrar gamlar kirkjur og styttur af heilagri Maríu.
Friesische brugghúsið var stofnað árið 1848 og telst því í hópi nýrra brugghúsa í Þýskaland. Þar sem brugghúsið getur ekki vitnað í langa hefð til að upphefja vörurnar sínar, þá leggja þeir mikla áherslu á að þeir séu að nota nýjustu tæki og tól við sína framleiðslu. Þeir segja að tækin þeirra fái sanna bjóráhugamenn til þess að kikna í hnjánum, svo flott séu þau.
Bjór dagsins er Jever Pilsner. Þetta er klassískur ljós pilsner, 4.9% að styrkleika. Brugghúsið villa meina að leyndarmál bjórsins sé vatnið, það sé töluvert mýkra heldur en gengur og gerist í Þýskalandi (sér í lagi þegar sunnar dregur) og því geti þeir leyft sér að hafa aðeins meira af humlum.
Bjórinn hellist mjög vel í glasið. Froðan fer ekki úr böndunum eins og stundum vill gerast, sér í lagi þegar verið er að meðhöndla íslenska framleiðslu.
Um leið og ég rek nefið ofan í glasið finnst að hér er eitthvað rammara á ferð en ég er vanur að drekka. Fyrsti sopinn lofar þó strax góðu. Ég finn að bjórinn er nokkuð gosminni en venjulegur helles bjór og sérstaklega er gosið einhvernveginn fínna (sem er dæmigert fyrir pilsner).
Ríkt humlabragð er það sem tekur á móti manni. Það minnir einna helst á blöndu af bock bjór og tékkneskum Böðvari. Eftirbragðið er nokkuð rammt og kallar ákveðið á næsta sopa til að skola munninn. Úr þessu verður keðjuverkun sem erfitt er að stoppa.
Froðan er nokkuð fljót að falla en hverfur þó ekki alveg. Þegar síðasti sopinn er drukkinn er enn smá eftir, sem vissulega er mikið gæðamerki.
Fyrir minn smekk er bjórinn aðeins of rammur/of mikið humlabragð. Það er þó ekki beint hægt að setja út á bragðið á neinn hátt. það er alls ekki neitt “djöfull á ég eftir að vera þunnur, slappur og veikur af því að drekka þennan bjór” bragð af bjórnum.
Tengill
18 maí 2007 kl. 10:01 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins kemur að þessu sinni frá G. Schneider & Sohn.
Schneider brugghúsið var stofnað í München árið 1872 af Georg Schneider I og syni hans. Eftir að brugghúsið var eyðilagt í stríðinu 1944 var öll framleiðslan flutt til Kelheim þar sem hún er enn í dag. Frá upphafi og til dagsins í dag hefur brugghúsið verið rekið af Schneider fjölskyldunni.
Schneider brugghúsið einbeitir sér eingöngu að hveitibjórum og framleiðir í dag:
- Original - Þann sem ég er að smakka í dag
- Weizen Hell - Ljós hveitibjór
- Kristall - Tær hveitibjór, lítur svipað út eins og venjulegur Helles
- Leicht - Léttari útgáfa bæði í kaloríum og áfengismagni. Hentar börnum milli þriggja og átta ára.
- Alkoholfrei - Áfengislaus “bjór”. Hentar börnum frá núll til tveggja ára.
- Aventinus - Stark hveitbjór, 8.2%. Þessi fær sér umfjöllun á næstu dögum.
Vitaskuld er allur bjórinn bruggaður eftir þýsku hreinleikalögunum.
Af mörgum hér í borg þykir Schneider hveitbjórinn bera af í heimi hveitibjóranna. Enginn kemst með tærnar þar sem Schneider hefur einhvern tímann verið með hælana.
Bjór dagsins er eins og áður sagði Original útgáfan. Þetta er hveitibjór í dekkra lagi (dunkel), 5.4% að styrkleika.
Um leið og bjórnum er hellt í glasið kemur í ljós þvílíkur gæðabjór þetta er. Froðan er hnausþykk og freyðir akkúrat 1.26 cm. upp fyrir brún glasins. Ilmurinn af bjórnum ber keim af léttum negul, múskat og öðrum kryddum, semsagt dæmigerð lykt fyrir góðan hveitibjór.
Hafi lyktin verið góð þá er bragðið ólýsanlegt. Bjórinn er mjög ferskur, nokkuð þéttur og flæðir um munninn eins og góð rjómasveppasósa. Froðan lifir allan sopann og alveg ofan í maga (jafnvel lengra…). Í bragðinu er örlítill ávaxtakeimur sem krafsar aðeins yfir í bananabragð. Smá bitur keimur kryddar svo það sem þarf að bæta við. Strax eftir fyrsta sopann kemur svo milt rjómakennt eftirbragð sem kallar samstundis og ítrekað á næsta sopa og skömmu síðar á nýja flösku.
Þétt froðan endist allan tímann meðan verið er að drekka úr glasinu. Enn er þykkt lag af froðu þegar síðasti sopinn er tekinn.
Schneider Weisse - Original fær hæstu einkunn hjá mér. Ég hvet alla þá sem ekki hafa smakkað hann að verða sér úti um flösku í næsta drykkjarvörumarkaði og smakka.
Tengill
17 maí 2007 kl. 9:45 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins kemur að þessu sinni frá Weihenstephan, elsta brugghúsi í heimi sem er ennþá starfandi. Brugghúsið er staðsett í Freising sem er smábær rétt fyrir utan München.
Sögu Weihenstephan má rekja aftur til 1040. Frá því ári fengu þyrstir munkar úr reglu Benedikts að brugga bjór til eigin neyslu og einnig til að selja. Síðan þá hefur Weihenstephan bruggað og selt bjór, enda engin ástæða til að breyta til ef viðskiptin ganga vel. Brugghúsið sjálft er ennþá á sama stað og í upphafi, á Nährberg hæðinni í Freising.
Frá Weihenstephan koma líka ýmsar aðrar landbúnaðarafurðir (mjólk, rjómi og ostar).
Bjór dagsins er Weihenstephaner - Hefe Wessbier. Þetta er klassískur hveitbjór, 5.4% styrkleikar, bruggaður skv. Þýsku Hreinleikalögunum frá því árið 1516
Froðan er nokkuð falleg þegar búið er að hella í glasið. Það er alltaf ákveðin öryggistilfinning sem kemur þegar maður sér þétta og góða bjórfroðu. Liturinn á bjórnum er einnig fallegur. Hér því strax kominn góður grunnur til að byggja á.
Áður en fyrsti sopinn er tekinn finnst mjúk ávaxtalykt með nokkuð ríkum bananakeimi. Við fyrsta sopa finnst ekki eins mikið bananabragð og ég átti von á. Hins vegar tekur á móti nokkuð ríkt humlabragð sem jaðrar við að vera rammt, en er það ekki. Djúpt í bragðinu má svona finna vott af einhverjum kryddum sem maður hefði frekar átt von á að hitta í jólasmákökum en bjór. Eftirbragðið er nokkuð milt með rjómakeim, en fer örlítið út í rammt í lokin.
Á heildina litið er þetta fyrirtaks hveitbjór. Sómar sér eflaust mjög vel með hvítpyslum á sunnudagsmorgni eða sem svaldrykkur fyrir fólk sem smakkar ekki áfengi.
Tengill
16 maí 2007 kl. 9:01 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins kemur að þessu sinni úr smiðju Hacker-Pschorr manna. Þetta er ekki fyrsta sinn sem bjór frá Hacker-Pschorr fer inn fyrir mínar varir, sjá Hacker-Pschorr Oktoberfest Märzen þar sem hægt er að lesa örstutta umfjöllun um brugghúsið.
Sternweisse er eins og nafnið gefur til kynna hveitibjór. Þetta er nokkuð dökkur bjór án þess þó að vera dunkel, 5.5% að styrkleika.
Um leið og ég hellti í glasið kom nokkuð mikil froða (auðvitað flæddi samt ekki uppúr eins og þegar maður hellir Víking Premíum). Skömmu síðar féll froðan ansi hratt. Þetta var því ekki góð byrjun. Í góðum bjór, og þá sérstaklega hveitibjór, þá lifir froðan lengi lengi án þess þó að gjósa harkalega í upphafi.
Í þetta skiptið var ég nokkuð svikinn. Í upphafi kom fann ég nokkuð súrt bragð í bland við banana. Í stað þess að bjórinn fylgdi þessu eftir með ríku rjómakenndu eftirbragði kom bara ekki neitt. Eftir nokkra sopa var hann því farinn að minna meira á sítrónuvatn en bjór. Ekki kemur upp nein löngun í næsta sopa sem er mjög sjaldgæft þegar verið er að drekka bjór sem er bruggaður á stór Münchenar svæðinu. Þetta eru því mikil vonbrigði. Bjórinn kláraðist þó samviskusamlega úr glasinu þegar Indriði kom í heimsókn.
Ég verð að gefa þessum bjór falleinkunn. Hann getur hugsanlega nýst íþróttamönnum sem vantar ferskan svaldrykk fyrir erfiðan leik, en hann er ekki að gera neitt fyrir áhugmenn um bjór, hvað þá að hann henti til magndrykkju.
Tengill
19 apríl 2007 kl. 7:52 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins er að þessu sinni Maibock sem kemur frá Hofbräu brugghúsinu.
Hofbräu brugghúsið er einna þekktast fyrir að eiga og reka eina frægustu knæpu í heiminum, Hofbräuhaus. Hofbräuhaus laðar að sér nánast alla ferðamenn sem koma til München. Einmitt þess vegna er þetta ekki skemmtilegasti staðurinn til að sitja að drykkju því það er venjulega ekki hægt að þverfóta fyrir útlendingum.
En það er vissulega gaman að kíkja þarna inn. Skemmtilegt er t.d. að sjá skápana þar sem vönustu drykkjumennirnir geyma krúsirnar sínar. Vanir drykkjumenn eiga að sjálfsögðu sína eigin krús og skáp. Þar bíður krúsin spennt eftir þér þegar mætt er til drykkju, tilbúin að sinna þér næstu tímana. Eftir góða drykkju fer svo krúsin beint í skápinn, og losnar þar með við það að verða þrifin.
Hofbräu brugghúsið var stofnað árið 1589 og er því orðið rúmlega 400 ára gamalt. Eins og ansi víða hér í nágreni er því komin þónokkur reynsla í bruggun. Sá sem stofnaði brugghúsið var Wilhelm V, Herzog von Bayern (1579-1597). Sagan segir að hann hafi verið með mjög þyrst og kröfuhart þjónustufólk sem var ekki sátt við þann bjór sem fékkst í München. Til að byrja með lét Wilhelm því flytja inn bjór frá Einbeck, en ákvað svo í framhaldinu að byggja sitt eigið brugghús.
Í dag er Hofbräu eitt af stóru brugghúsunum í München og jafnframt eru þeir með, að ég held, næst stærsta tjaldið á Oktoberfest. Úti um alla borg eru knæpur og bjórgarðar sem selja HB bjór.
Hofbräu Maibock bjórinn er eins og nafnið bendir til bock bjór, þ.e. sterkur lager bjór. Að styrkleika er hann 7.2%. HB Maibock er elsti bock bjórinn í München. Saga hans nær aftur til 1614. Þá var Hofbräu brugghúsið komið á fullt skrið en menn kvörtuðu undan að fá ekki gamla góða sterka bjórinn sinn frá Einbeck (þaðan sem bock bjórinn er upprunninn). Það var einhvern veginn ekki nægur styrkur í því sem HB menn voru að brugga. Því var brugðið á það ráð að herða áfengisprósentuna aðeins með því að brugga Maibock bjór.
Maibock bjórinn er að sjálfsögðu bruggaður eftir þýsku hreinleikalögunum. Það kemur líka strax í ljós þegar honum er hellt að þarna er ekkert rusl á ferð. Froðan nær nákvæmlega uppá glasbrún eins og hjá öllum betri bjórum.
Á myndinni sést að Maibock bjórinn nokkuð rauðleitur. Eins og með marga bock bjóra þá er hann örlítið rammur. Ríkt kryddbragð er af bjórnum sem á köflum minnir örlítið á gammel dansk. Þrátt fyrir nokkurn styrk (7.2%) þá vottar ekki fyrir áfengisbragði. Bjórinn er hins vegar nokkuð sætur, sem gefur honum ákveðna konfekt áferð. Eins og oft áður þá rennur bjórinn ljúflega niður og skilur eftir sig löngun í annan.
Tengill
28 janúar 2007 kl. 4:25 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins í dag, í gær, á morgun og flesta aðra daga er Augustiner - Lagerbier Hell.
Þetta er í annað sinn sem þessi bjór er Bjór dagsins. Ástæðan er einföld: Þetta er besti bjór í heimi. Fyrri skrif eru ennþá í fullu gildi og verður þetta því ekki lengra.
Tengill
26 janúar 2007 kl. 10:05 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins, eftir langt hlé, er að þessu sinni Andechser - Bergbock Hell sem kemur frá Andechs klaustrinu sem er hér fyrir sunnan München.
Bjór hefur verið bruggaður í Andechs klaustrinu frá því 1455. Það er því komin nokkur bruggreynsla þar á bæ eins og víðar hjá brugghúsum hér í Bæjaralandi.
Árlega eru bruggaðir í kringum 9 milljón lítrar af bjór í klaustrinu og af þeim eru um það bil 10% bornir fram á bjórknæpunni á staðnum. Brugghúsið leggur áherslu á góð tæki til framleiðslunnar auk þess sem bjórinn fær þann tíma sem hann þarf til að gerjast eðlilega.
Bergbock Hell er eins og nafnið getur til kynna ljós og sterkur bjór, 6.9%. Hann er mjög bragðmildur (milt humlabragð) og rennur ljúft, og og ekki síst hratt, niður. Þrátt fyrir að vera þetta sterkur er alls ekkert áfengisbragð af honum eða neitt annað (ó)bragð sem stundum vill einkenna sterkari bjóra. Bjórinn er frekar goslítill, en það passar mjög vel við bjór af þessum styrkleika.
Eftirbragðið er einnig mjög gott. Þó kemur smá rammt bragð upp í munninn í lokin, en það skemmir alls ekki fyrir heldur gefur bjórnum skemmtilegan karakter.
Bjórinn er nokkuð matarmikill og hentar því líklegast ekki í magn og/eða kappdrykkju. Hann er því kjörinn fyrir “Einn bjór fyrir svefninn” aðstæður (enda sér styrkurinn í bjórnum til þess að maður sofnar eins og ungabarn).
Síðasta sumar fór ég, ásamt Ástu og Finnboga, í hjólaferð í Klaustrið. Það vita þeir sem þekkja að hvergi er betra að drekka bjór en þar sem hann er bruggaður. Reyndar kom mér það í opna skjöldu að bjórinn var borinn fram í dvergkrúsum í klaustrinu.
Á heildina litið er þetta hinn besti bjór. Ekki góður til magndrykkju, en virkilega góður til þess að smakka á á góðri stundu.
Vart þarf að minnast á það að þessi bjór er bruggaður samkvæmt Þýsku Hreinleikalögunum. Það er því ekki hægt að búast við því að liggja veikur í koju daginn eftir neyslu þessa bjórs. Fyrir þann leik mæli ég hins vegar eindregið með Egils Premium, því íslenska rusli.
Tengill
6 nóvember 2006 kl. 9:52 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins er að þessu sinni Paulaner Salvator, Starkbier, frá Paulaner brugghúsinu hér í borg.
Þrátt fyrir að nafnið virðist gefa til kynna að þarna sé á ferðinni sterkur bjór (í % talið) þá vísar nafnið til þess hversu matarmikill bjórinn er. Reyndar er þessi bjór langt yfir meðallagi í styrkleika. Flaskan sem ég er að drekka núna 7.9% sem er ansi miklu meira en frændbjórarnir hér í kring.
Salvator bruggið er dökkur bjór. Liturinn er svona karamellulitaður og jafnvel örlítið út í rautt. Strax við fyrsta sopa finnur maður að hér á ferðinni alvöru bjór. Hann er mjög bragðmikill og jafnvel örlítið rammur. Ég veit ekki alveg á hvað bragðið minnir, en þetta er eitthvert sambland af dökkri karmellu, sóti, vaxi og humlum. Áferðin er hins vegar mjög skemmtileg og mjúk, minnir helst á rjóma, rennur m.ö.o. ljúft niður.
Hér er svo auðvitað Starkbier fest sem er venjulega í mars og apríl. Ég hef ekki enn upplifað þessa hátíð, en hlakka mikið til þegar hún hefst. Sagan segir að þökk sé miklum styrkleika bjórsins verði allir þeir sem krús geta valdið svo svartir af öli að annað eins þekkist varla. Menn gleyma stað og stund og muna auðvitað ekkert daginn eftir.
Ég finn að styrkur bjórsins kemur mjög skemmtilega til leiks. Bara eftir hálfan lítra af þessum bjór er ég orðinn töluvert skemmtilegri en vanalega. Ég veit ekki hvernig ég verð á Starkbierfest þar sem maður drekkur svona bjór allt kvöldið. Ansi verð ég kátur…
Tengill