Archive for júní, 2006

Bjórinn búinn?

Það er ljótt að heyra ef tíðindin sem Morgunblaðið flytur okkur eru sönn. Samkvæmt þessari frétt hér þá eru Englendingar að klára allan bjórinn í Þýskalandi. Ekki nóg með að það fari mest fyrir þeim vegna hávaða og ólæta, þá þurfa þeira líka að klára bjórinn. Það er hætt við því að maður þurfi að fara að birgja sig upp svo ekki komi til skorts ástands. Ég á nú samt von á því að Bæjarar ráði við þetta, hér eru menn vanir að halda miklar bjórhátíðir, þannig að smá fótboltamót ætti ekki að setja allt úr skorðum.

Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að þetta lið sem er vant því að drekka kolsvart dökkt öl missi sig þegar það kemst í Þýska lagerinn, hann er bara svo rosalega góður.

Athugasemdir (2)

Second hand

Fyrir þá sem ekki eiga Lederhosen nú þegar, þá getur verið sniðugt að kíkja í second hand búðir og reyna að leita sér að annarrar eða þriðju kynslóðar leðurbuxum. Ég fann þessa fínu búð í hjarta miðbæjarins sem einmitt sérhæfir sig í svona vörum.

secondhand.jpg

Kostirnir við að kaupa sér notaðar leðurbuxur eru auðvitað óteljandi. Til dæmis er fyrri eigandi þá búinn að skella lífssýnum af öllum stærðum, gerðum og tegundum í buxurnar auk þess sem hægt er að treysta því að buxurnar angi af bjór og svínafeiti. Þetta er eitthvað sem getur tekið mörg ár að græja fyrir óreyndan buxnaeiganda.

Ef ég hefði ekki gert þau mistök sjálfur að kaupa nýjar buxur á sínum tíma, þá er ég ekki í vafa um hvað ég myndi gera í dag.

Athugasemdir (3)

Lederhosen

Daginn sem maður nær að girða leðurbuxnar svona hátt (án þess að meiða sig) þá fer maður loksins að smella inn í andrúmsloftið hérna á Mjaðarvöllum.

Lederhosen

Athugasemdir (4)

Týndi hlekkurinn

Oft er talað um sekkjapípan sé hinn týndi hlekkur milli tónlistar og hávaða. Ég sannfærðist endanlega í gærkvöldi þegar ég heyrði þennan skerandi hávaða berast um hverfið mitt.
Þarna var á ferð skoskur sekkjapípuleikari sem var að kynna fyrir fólki þessa fínu línu milli tónlistar og hávaða. Þess má geta að hann tróð í sig eyrnatöppum áður en hann byrjaði að spila.

Stutt tón- og mynddæmi hér

Athugasemdir

Derrick á leiðinni

Þá er ég búinn að panta nokkra Derrick þætti á DVD.
Þeir þættir sem eru væntanlegir eftir helgi eru:

  • Die Rolle seines Lebens
  • Die Nacht des Jaguars
  • Das absolute Ende
  • Das Abschiedsgeschenk

Í hlutverki mannsins með baugana, Horst Tappert

Derrick horst-tappert.jpg

Hundtryggur aðstoðarmaður hans, Fritz Wepper (sem sést hér ásamt konu sinni)

FritzWeper_und_Frau.jpg

Það verður hátíð í bæ þegar þessir diskar koma.

Athugasemdir (4)

Skárra veður

Það var loksins að veðrið skánaði aðeins hjá mér. Hitinn lækkaði úr 30 gráðum niður í 25, nú er loksins orðið líft hérna. Þegar maður er vanur að hitinn fari ekki upp fyrir 10 gráður, þá er allt þar fyrir ofan einfaldlega of heitt.

Athugasemdir

17. júní hátíðarhöldin

17. júní hátíðarhöld Íslendingafélagsins í München voru haldin á bökkum Isar þann 18 júní. Vegna óhagstæðrar veðurspár þann 17. var ákveðið að fresta þessu um einn dag. Veðrið var því all þokkalegt, 30 stiga hiti, sól og logn eins og sést á þessari mynd.

ritarinn.jpg

Við vorum líka sérstaklega heppin með stað, því í aðeins 20 metra fjarlægð var “ðe öglí neiked gæ” að sóla sig (bæði að framan og aftan).

Fyrir utan glæsilegt grill sem formaður og ritari félgasins stóðu að, þá má segja að hápunkturinn hafi verið þessi forláti bjór dunkur.

bjorkraftaverk.jpg

Þessi tunna var með innbyggðu kælikerfi, það þurfti bara að toga í einn spotta og eftir 30 mín var kominn ískaldur bjór. Kuldinn í tunnunni entist allavega kútinn, því síðustu droparnir úr tunnunni voru ekki síður kaldir en þeir fyrstu. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið kraftaverki líkast, þarna stóð maður löðursveittur í brennheitri sól, en gat allan tímann svalað þorstanum með ísköldum bjór. Þetta magnaða kælikerfi kalla þjóðverjarnir “Klick und Kühl” . Ég veit ekkert hvernig það virkar, en tunnan sjóðhitnaði að utan en var greinilega ísköld að innan. Hugsanlega getur Efnarfræðingurinn svarað því hvernig þetta gerist allt saman bak við tjöldin?

Á þennan 50 kg. dunk þyrfti ekki annað en að strengja tvö bönd svo hægt sé að setja hann á bakið og þá er komin græja sem mætti örugglega selja fyrir íslenskar útihátíðir (í stað bjórkrana eins og þessi tunna var með yrði þá bara slanga beint upp í þann sem ætti tunnuna).

Athugasemdir (3)

Hress á nikkuna

Í göngugötunnu er búinn að vera hress harmonikkuleikari síðustu daga. Hann hefur verið að spila tregfulla rússneska músik við þó nokkra hrifningu viðstaddra.

nikkari.jpg
Hér er smá dæmi um tregafullan leik hans.

Hann var hins vegar óvenju hress í gær. Ég náði ekki almennilegu skoti af kallinum, en ef vel er að gáð, sést hvernig hann öskrar nánast geðveikislega á fréttamanninn sem var að fanga stemmninguna í miðbænum fyrir fótboltaleikinn sem var framundan. Sjá smá myndband

Athugasemdir (2)

Müller´sches Volksbad

Skellti mér áðan í Sundhöll Mjaðurvellinga, Müller´sches Volksbad.

Þvílíkur lúxus er nú að geta hoppað sveittur og skítugur ofan í laugina án þess að þurfa að eyða tíma í að baða sig áður. Svo mikil áhersla er lögð á þetta að það er enga sápu að hafa á svæðinu. Ef þú vilt sápa þig, þá verður þú bara að koma með sápu að heiman.

vb-kl-schwimmhalle.jpg

Til þess að bæði þeir sem vilja synda og þeir sem vilja bara leika sér og busla geti notið laugarinnar er búið að skipta henni í þrjá hluta með köðlum. Þetta er það haganlega gert að það er eiginlega ekkert hægt að synda, maður flækist strax í köðlunum (lauginni er bæði skipt langsum og þversum).

Eftir góða sundferð er svo nauðsynlegt að kæla sig. Til þess er þessi fíni bjórgaður/veitingastaður beint fyrir utan dyrnar. Ég sá hvergi bjórsölu inn í sundhöllinni, en líklegast er ætlast til að maður komi með eigið nesti.

muller.jpg

Athugasemdir

Fótbolti

Eins og einhverjir vita þá er HM í fótbolta haldið í Þýskalandi þessa dagana. Á Olympíusvæðinu er búið að koma fyrir risa flatskjá þar sem allir leikir eru sýndir. Á undan hverjum leik er svo boðið upp á skemmtiatriði þar sem þýskur húmor ræður ríkjum. Ekki þarf að taka fram að þarna eru líka sölubásar frá helstu brugghúsum á svæðinu þar sem hægt er að fá bjór og aðra þjóðlega rétti.

Ég verð að segja að mestu vonbrigðin hingað til í þessari keppni séu að gamla kempan Maradonna hafa ekki verið valin í lið Argentínumanna. Við hefðum verið að horfa á miklu skemmtilegri bolta ef hann hefði fengið að spila með. Spurning hvort hann komi sterkur inn eftir 4 ár?

Hér er smá myndband sem sýnir þennan risaskjá.

Athugasemdir (2)

« Fyrri færslur