25 júlí 2006 kl. 6:45 pm
· Tilheyrir Þýskaland
Að stofna bankareikning í Þýskalandi er einfalt mál. Hér er stutt samantekt á ferlinu.
Skref 1
Á netinu er hægt að finna umsókn og prenta út. Ég er í viðskiptum við Dresdner Bank og fann ég allt á þeirra heimasíðu. Þegar búið er að fylla út umsókina og prenta út, þá á maður að fara með umsóknina í næsta útibú eða senda hana á heimilsfang sem stendur á umsókninni.
Skref 2
Ég fór í næsta útbú. Þar tók á móti mér starsmaður sem sagði mér að ef ég vildi ekki að þetta tæki allt of marga daga, þá ætti ég að fara í mitt útibú (og jafnvel þó mér væri sama þá þetta tæki tíma, þá ætti þetta að fara í gegnum mitt útbú enda þyrfti minn persónulegi þjónustufulltrúi að hitta mig). Til að finna mitt útibú er hægt að fara á netið hjá bankanum. Í mínu tilfelli valdi vefsíðan bankaútibú sem er ekki næst heimilinu, en hvað um það.
Skref 3
Fara í rétt útibú vopnaður umsókn og vegabréfi. Þar er tekið við umsókninni og vegabréfið ljósritað fram og til baka. Starfsmaður þar kemur þér í skilning að núna gerist ekkert næstu 10 daga, umsóknin fari í venjulegt ferli hjá þeim. Í þessari heimsókn tók á móti mér minn persónulegi þjónustufulltrúi (sem ég gat svo ekkert talað við vegna tungumálaörðugleika).
Skref 4
Bíða rólegur í 10 daga.
Skref 5
Á 11. degi kom detbetkortið í pósti. Með fylgdi bréf sem sagði að frekari upplýsingar kæmu síðar
Skref 6
Á 12. degi kom stórt umslag fullt af “Velkominn í viðskipti við bankann” upplýsingum. Þar sem ég er útlendingur eru allar þessar upplýsingar á þýsku.
Skref 7
Á 13. degi kom pin númerið fyrir debetkortið. Kortið var því orðið nothæft fyrir búðir og hraðbanka.
Skref 8
Á 14. degi kom notandanafnið mitt í netbankann.
Skref 9
Á 15. degi kom lykilorðið í netbankann. Ég hélt að núna gæti ég loks farið að að nota bankann, en það var auðvitað ekki svo einfalt. Ennþá vantaði TAN númerin.
Skref 10
Á 17. degi kom blað með TAN númerunum mínum. Þetta eru númer sem þarf að hafa við höndina þegar maður gerir millifærslur í netbankanum.
Skref 11
Allt tilbúið!
Það tók því ekki nema tvær og hálfa viku að fá bankareikning með debetkorti og netbanka til að virka.
Þegar ég lít á þennan feril sé ég hvergi glufu til þess að hagræða. Þetta fer í raun og veru hröðustu leið í gegnum kerfið.
Tengill
23 júlí 2006 kl. 10:06 pm
· Tilheyrir Annað
Um helgina leigðum við Ásta okkur bíl og keyrðum aðeins suður í land og upp í Alpana (auðvitað með viðkomu í IKEA).
Helsti viðkomustaður okkur var Arnarhreiðrið, eða Kehlsteinhaus eins og innfædur vill kalla það. Húsið er í um það bil 160 km. fjarlægð frá München, í bænum Berchtesgaden.
Arnarhreiðrið er glæsilegt hús byggt upp á fjallstoppi í 1834 metra hæð yfir sjávarmáli. Húsið fékk Foringinn í 50. ára afmælisgjöf frá Flokknum.
Til að komast að Hreiðrinu þarf fyrst að keyra upp í mitt fjall. Þar er hægt að leggja bílnum og taka rútu síðasta spottann. Þegar rúturnar eru komnar svo gott sem upp á topp, þá er gengið inn í göng sem liggja inn í mitt fjallið. Þar er svo lyfta sem flytur mann beint upp í húsið. Lyftan, sem flytur mann eina 124 metra upp, er ansi mögnuð og lítur frekar út fyrir að vera lyfta á lúxushóteli frekar en lyfta inn í miðju fjalli. Það hefur greinilega ekkert verið sparað við smíðina á þessu húsi. Reyndar finnst manni alveg ótrúlegt að detta í hug að byggja hús þarna uppi.
Á þesari mynd sést húsið ofan frá.
Því miður var útsýnið ekki eins og best verður á kosið, en uppi á toppinum gekk á með skúrum og þoku (já eða skýjum). Hitastigið var eitthvað í kringum 10 gráður og gola, þannig að þetta minnti helst á góðan sumardag á Íslandi.
Tengill
15 júlí 2006 kl. 7:27 pm
· Tilheyrir Annað
Fórum í vikunni, ásamt Þresti og Aðalheiði, að skoða Schloss Neuschwanstein. Kastalinn er staðsettur suðvestur af München og er hinn fallegasti eins og þessi mynd sýnir.
Að venju var 30 stiga hiti og sterk sól þannig að það var ljúft að labba þarna upp og svitna aðeins. Sem betur fer vorum við á blæjubíl þannig að það var auðvelt að lofta út í bílnum á heimleiðinni.
Tengill
15 júlí 2006 kl. 10:55 am
· Tilheyrir Annað
Í síðustu viku komu fyrstu gestirnir í heimsókn til okkar. Það voru þau Þröstur og Aðalheiður sem ákvaðu að kíkja við hjá okkur.
Föstudaginn 7. júlí (daginn sem þau komu) leigðum við okkur bíl og brunuðum til skemmti- og gleðibæjarins Mühldorf sem er c.a. 100 km. austur af München.
Þar um kvöldið var hin stórkostlega Austurríska hljómsveit Global Kryner með tónleika. Þeir örfáu sem ekki vita hvaða hljómsveit þetta er ættu að muna eftir henni úr Júróvisjón 2005 þar sem sveitin sló í gegn fyrir Austurríki með laginu Y Así.
Tónleikarnir voru auðvitað alveg frábærir og slá út alla aðra viðburði sem ég hef farið á hingað til. Stemmningin í salnum var líka ansi góð, sérstaklega eftir hlé þegar fólk var búið að hella í sig bjór og borða Bratwürst með.
Þar sem myndatöku voru bannaðar þarna þá gat ég því miður ekki tekið margar myndir, en hér fyrir neðan er þó eitt 24 mb myndband sem ég tók.
Global Kryner á tónleikum, Mühldorf 7. júlí 2006
Tengill
15 júlí 2006 kl. 9:14 am
· Tilheyrir Annað
Þá erum við Ásta loksins komin með samning við símafélag hér í borg (og þar með búin að skuldbinda okkur til fjölda ára að halda viðskiptum okkar við þetta félag).
Nýju númerin eru:
Ásta GSM DE: +49 176 219 893 47
Ásta Homezone: +49 89 203 171 38
Brynjar GSM DE: +49 176 219 893 46
Brynjar Homezone: +49 89 203 171 28
Eins og allir góðir hlutir hér í landi þá er þetta aðeins flóknara en maður á að venjast.
Homezone númerin virka þannig að ef við erum innan c.a. 500 metra radíus frá heimilinu okkar þá er hægt að hringja í okkur í þau númer. Gjaldskráin fyrir homezone númer er sú sama og ef hringt er í heimasíma í Þýskalandi. Ef við erum hins vegar fyrir utan þennan 500 metra radíus, þá verður að hringja í GSM númerin (og greiða þá hærra gjald).
Tengill
4 júlí 2006 kl. 10:37 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins í dag er einfaldlega oftast kallaður Besti bjór í heimi. Bjórinn kemur frá Augustiner Bräu, elsta brugghúsi í München. Þar byrjuðu menn að brugga bjór árið 1328 þannig að það er komin þó nokkur reynsla hjá þeim. Sjálft brugghúsið er staðsett rétt hjá Aðaljárnbrautastöðinni hér í borg og þangað er hægt að fara og fá sér svínaskanka, súrkál og bjór.
Um sjálfan bjórinn frá Augustinger þarf lítið að segja, 99.999995% þeirra sem hafa smakkað hann eru sammála um þetta sé langt besti bjór sem til er. Hinir sem hafa eitthvað annað að segja hafa einfaldlega ekkert vit á bjór og ættu að snúa sér að einhverju öðru en bjórdrykkju (til dæmis að prjóna eða hekla).
Bjórinn sem ég drakk í þetta skiptið var Lagerbier Hell. Þetta er ljós og skemmtilegur lager, 5.2% að styrkleika. Þetta er einn af þessum bjórum sem hægt er að drekka endalaust af þar sem hann er frekar léttur og bragðmildur. Eftirbragðið er líka rosalega gott. Um leið og einn bjór er búinn kemur sterk löngun í þann næsta. Það allrabesta er svo að daginn eftir er maður alls ekki svo slappur, enda eru engin aukaefni í þessum bjór, aðeins vatn, malt og humlar.
Flaggskipið hjá Augustiner er auðvitað að fá Edelstoff bjórinn beint úr viðartunnu í bjórgarði. Þeim bjór verður einfaldlega ekki lýst með orðum, hér er það upplifunin sem skiptir öllu máli. Meira um hann síðar.
Tengill
4 júlí 2006 kl. 9:30 pm
· Tilheyrir Annað
Ég þarf að redda mér bol með þessari áletrun, þeir duttu af markaðnum eftir að Þjóðverjum fór að ganga vel á HM, en hljóta að koma aftur núna.
Tengill
3 júlí 2006 kl. 9:16 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins í dag kemur frá Weißbierbrauerei Hopf brugghúsinu, sem er hér suður af Mjaðarvöllum. Brugghúsið var stofnað 1910 og í dag er það þriðja kynslóð Hopf fjölskyldunnar sem sér um reksturinn. Hér er mynd af bruggmeisturunum með einn bjór í hönd (ég verð að eignast svona glas fyrr heldur en seinna).
Eins og nafnið á brugghúsinu gefur til kynna þá kemur eingöngu hveitibjór frá þeim, einar 8 tegundir. Tegundin sem ég smakkaði í dag heitir Helle Weiße og er dæmigerður hveitibjór, ljós, vel gruggugur með styrkleikann 5.3%.
Þessi bjór er frekar léttur (ólíkt mörgum öðrum hveitibjórum) og er ekki bragðmikill. Helsta bragðið er blanda af ávöxtum (létt bananabragð). Ég get vel ímyndað mér að þessi bjór sé góður fyrir byrjendur í hveitibjóradrykkju, enda rann hann mjög ljúft niður og skildi ekki eftir sig mikið eftirbragð.
Því miður á ég ekki rétt glas fyrir þenna bjór, en ég lét mér nægja að sötra hann úr Paulaner Wießbier glasi. Ég hugsa samt að ég skelli mér á rétt glas við tækifæri, það skiptir öllu máli að drekka bjórinn úr sínu eigin glasi.
Ég á ekki von á að ég kaupi þessa tilteknu bjórgerð aftur þar sem mér fannst hann of bragðdaufur, en ég gæti vel hugsað mér að smakka dökka hveitbjórinn frá þeim. Líklegast er hann nokkuð bragðmeiri og þyngri, auk þess væri líka gaman að smakka sterka og dökka hveitibjórinn. Bruggmeistararnir mæla með honum yfir vetrartímann þegar það er virkileg þörf á að fá yl í kroppinn. Það eru því næg verkefni framundan til að geta gert Hopf fjölskyldunni vel skil.
Tengill
1 júlí 2006 kl. 8:04 am
· Tilheyrir Annað
Mínir menn völtuðu yfir Argentínu í gær. Þetta var öruggt allan tímann. Hefði viljað sjá Oliver Kahn halda markinu hreinu í vítaspyrnukeppninni, en Lehmann stóð sig þó ágætlega.
Tengill