Archive for ágúst, 2006

Paulaner - Oktoberfest Bier

Þar sem ekki eru nema rúmar tvær vikur í að Oktoberfest hefjist þá er tilvalið að skoða aðeins úrvalið af Oktoberfest bjórum.

oktober3.jpg

Í dag verður fyrir valinu Paulaner Oktoberfest bjórinn. Hann kemur frá Paulaner brugghúsinu hér í borg. Paulaner hefur bruggað bjór frá því 1634. Í upphafi voru það munkar sem brugguðu til eigin neyslu (sem hefur væntanlega verið all nokkur) en í framhaldinu var farið að selja bjórinn til almúgans.
Paulaner er líka þekktur fyrir að koma sterkur inn á Starkbier hátíðinni á vorin í Paulaner kjallaranum í Nockherberg með Salvator bjórnum. Þá hátíð hef ég ekki enn upplifað, en ég mun gera henni skil þegar þar að kemur.

Án þess að ég hafi gert sérstaka könnun á því, þá virðist Paulaner vera eini Münchenar bjórinn sem hægt er að fá mjög víða fyrir utan Þýskaland (reyndar ekki svo víða að hann fáist á Íslandi), en ég veit að hann fæst víða í evrópu og í Bandaríkjunum. Því miður er það ekki alveg sami mjöður sem er fluttur út og er drukkinn innansveitar, en hann kemst nærri.

Bjór dagsins er eins og áður sagði Oktoberfest bjórinn. Hann er lagerbjór, 6.0% að styrkleika og er því nokkuð sterkari en hefðbundi lagerinn sem maður drekkur.

paulaner.jpg

Því miður varð ég fyrir miklum vonbrigðum með bjórinn. Hann er eiginlega alveg bragðlaus. Kannski skemmir það fyrir að ég er bara með hálfan líter við hönd en ekki líterkrús, en þrátt fyrir það eru vonbrigðin mikil. Oftast fær maður ríkara malt- og humlabragð þegar bjórinn er sterkari, en í þetta skiptið fær maður ekkert nema ríkari ölvun. Það er ekki einu sinni neitt eftirbragð að ráði til að smjatta á í lokin. Það verður þó að teljast bjórnum til tekna að það er ekkert vont bragð heldur. Það er nú annað en hægt er að segja um margan Íslenskan bjórinn.

Þrátt fyrir þessi vonbrigði mun ég ekki hætta að drekka bjór, ég prófa bara næstu tegund.

Athugasemdir (4)

Lúðrasveitartónlist

Víða standa frændur okkar þjóðverjar framarlega, en þó hvergi eins framarlega og þegar kemur að flutningi lúðrasveitartónlistar.

Þessum sönnunargögnum náði Finnbogi á filmu í Enska garðinum (við kínverska turninn) um daginn. ATH. þetta myndband er 5mb og gæti því verið smá stund að hlaðast inn.

Besta lúðrasveit í heimi?

Þessi frábæra lúðrasveit samanstendur af eldri köllum (frá c.a. 70 ára og uppúr) sem sitja þarna og drekka spila allan liðlangan daginn. Það þarf auðvitað ekki að taka það að þeir eru allir í 2.-5. kynslóðar leðurbuxum sem eru girtar upp í háls. Þökk sé því hversu hátt buxurnar ná þá er einmitt mjög skemmtilegt að sjá þá haltra eftir nýjum bjór (hægt að sjá það á heila og hálfa tímanum allan daginn).

Athugasemdir (4)

Andechs klaustrið

Á síðasta laugardag fórum við Ásta og Finnbogi í hjólaferð í Andechs klaustrið sem er hér suður af borginni. Eftir 45 km. hjólaferð um sveitir landsins…

sveitir_landsins.jpg

rúlluðum við upp að klaustrinu.

Sjálfur þekki ég sögu þessa klausturs ekki neitt, en aðalatriðið er að þarna er bruggaður fyrirtaks bjór. Við settumst því í klausturbjórgarðinn

biergarden.jpg

og skelltum í okkur smá orkudrykk eftir erfiða hjólaferð.

andecs.jpg

Það sem var óvenjulegt við klausturbjórgarðinn (eins og sést á myndinni) er að maður fær litla bjórkrús (svokallaða dvergkrús, 0.5 lítrar) nema maður biðji sérstaklega um annað. Í venjulegum Bæverskum bjórgarði er ljósi bjórinn ekki afgreiddur í minni einingum en líter, enda vita þeir sem smakkað hafa bjórinn hérna að það tekur því nú ekki að byrja fyrir minna en 1-2 lítra.

Þar sem það var ekki mikill áhugi að hjóla aðra 45 km. heim á leið, þá hjóluðum við á næstu S-bahn stöð sem var í um 5 km. fjarlægð og tókum lestina heim.

Athugasemdir (4)

Austurríki - Sviss - Liechtenstein (og ekki Ítalía)

Helgina 18. til 20. ágúst fórum við Ásta ásamt Finnboga (sem dvaldi hér í orlofi í 10 daga) í helgarferð yfir í Alpana. Aðal takmarkið var að komast til Ernen þar sem Ásta hafði farið á píanónámskeið fyrir nokkrum árum. Farartækið var BMW hraðbrautarkaggi sem við tókum á Schönes Wochenend angeboti hjá Enterprise mönnum.

Á föstudeginum keyrðum við til Lindau. Þar setti ég ferðamannakittið á mig (sjá mynd) og við röltum um.

lindau.jpg

Því miður vorum við of seint á ferð til þess að geta farið í siglingu um Bodensee. Síðasta ferð hafði verið 6 tímum áður.

hofnin.jpg

Ferð okkar um Lindau lauk snarlega þegar himnarnir opnuðust og gusuðu hressilega yfir okkur fersku rigningarvatni.

Eftir þetta keyrðum við til Bregenz í Austurríki. Þar fórum við á Klausturkjallarann og borðuðum rosalega góðan mat. Einnig fengu sumir, sem ekki voru að keyra, smá bjórdreytil.

keller.jpg

Daginn eftir keyrðum við áleiðis til Ernen. Á leiðinni er farið í gegnum Furka göngin. Í stað þess að keyra í gegnum þau eins og maður á að venjast var keyrt upp á lest sem flutti mann síðan í gegnum þau.

lestin.jpg

Skömmu síðar vorum við komin til Ernen

ernen.jpg

Til að sjá Alpana almennilega skelltum við okkur í kláfi upp á Eggishorn sem er tindur í tæplega 3000 metra hæð.
Útsýnið var auðvitað stórkostlegt þarna uppi

eggishorn.jpg

það kom sér líka vel að vera í fjallgöngugallanum, því þarna uppi var frost og snjór.

eggishorn2.jpg

Mér voru því allir vegir færir þarna uppi.

Blómin í Ernen komu vel undan vetri eins og þessi mynd sínir

ernen2.jpg

Daginn eftir stóð til að keyra í gegnum Ítalíu á leiðinni heim til München. Til þess að komast þangað þarf að fara í gegnum önnur lestargögn (svipuð og Forka göngin). En þar sem Ítalir eru þekktir fyrir leti og ómennsku, óstundvísi og hangs þá keyrði lestin þar í gegn bara á tveggja tíma fresti. Við nenntum því ekki að bíða eftir því og fórum sömu leið til baka með viðkomu í smálandinu Liechtenstein.
Þar var svo tekinn einn kaffibolli og nokkrar flöskur af víni landsins keyptar.

Athugasemdir (6)

Gestir á ferð

Í upphafi ágústmánaðar komu Helga og Andrés við hér á Mjaðarvöllum. Þau voru á leið í Alpana þar sem Helga ætlaði á klarienttunámskeið og Andrés í slökun.
Eftir að hafa farið með þau í Augustiner keller til að drekka bjór, þá fórum við á “all you can eat” sushi hlaðborð og átum á okkur gat. Í bakgrunni sést færibandið sem flutti okkur matinn.

shusi.jpg

Það er gaman að geta borðað sushi að vild fyrir 18 €. Mig minnir nú að það hafi verið eitthvað dýrara þegar ég fór á sushi stað í Reykjavík fyrir nokkrum árum (þá fékk ég bara 6 bita en ekki 67 eins og þarna).

Athugasemdir

Gestur í orlofi

Þessa dagana dvelur Finnbogi hér á Mjaðarvöllum í orlofi.
Í góða veðrinu skelltum við okkur í Hjartargarðinn

hjortur.jpg

og fengum okkur einn bjór

orlof.jpg

Fyrir bjóráhugamenn má geta þess að Hjartargarðurinn býður upp á Augustiner Helles úr tunnu. Þarna fær maður líka að skola krúsina sína sjálfur áður en hún er fyllt af bjór, sem gerir bjórdrykkjuna enn skemmtilegri fyrir vikið.

Athugasemdir (3)

Annað verðlag

Eitt sem maður þarf að sætta sig við í nýju landi er annað verðlag en maður á að venjast.

Til dæmis þá kostar 1 kg. af kjúklingabringum 5 € (innan við 500 kr.) og svo kaupi ég coca cola (gervi kókakóla, ekki ekta en venst vel) á 26 cent líterinn.
Einnig er hægt að fara út að borða (forréttur + pizza + bjór) fyrir c.a. 15-20 €.

Vart þarf að minnast á að bjórinn hér er líka miklu ódýrar heldur en maður er vanur (já og miklu miklu betri líka). Einmitt þökk sé hagstæðu bjórverði ef ég sparað fúlgur fjár á þessum stutta tíma sem ég hef dvalið hér á Mjaðarvöllum. Fyrir þann sparnað get ég kannski leyft mér að kaupa einn bjór á veitingahúsi næst þegar ég kem til Íslands.

Athugasemdir

Áhugaverð rýni

Ég mæli með því að fólk lesi veitingahúsagagnrýni Hjörts Howsers. Hjörtur tekur íslenska veitingamenn í bakaríið (verðskuldað) og hlífir engum.

Athugasemdir

Kreisverwaltungsreferat

Ein er sú stofnun hér í borg sem allir útlendingar þurfa að glíma við. Þetta er Das Kreisverwaltungsreferat.
Þessi stofnun sér um allar skráningar og leyfi sem útlendingar þurfa að hafa til að mega búa og starfa (eða læra) í München.
Eins og allar góðar stofnanir sem eru að “þjónusta” útlendinga, þá eru allar upplýsingar sem maður þarf á öllum tungumálum sem hugsast getur, þ.e.a.s. á þýsku. Á heimasíðunni á nú að vera hægt að finna flest þau eyðublöð sem maður þarf. Ef maður svo loks finnur rétt eyðublað þá er bara að finna einhvern innfæddann til þess að leiða þig í gegnum útfyllinguna. Hér gildir þýska reglan, “Hvers vegna að hafa þetta einfalt þegar hægt er að hafa þetta flókið”.

Hér er svo smá upptalning á samskiptum mínum við þessa stofnun.

Skrá sig í borgina
Mitt fyrsta verk var að skrá mig inn í borgina. Eftir að hafa fengið góða aðstoð frá íslendingum hér í borg, tókst mér loks að fylla eyðublaðið út. Aðal málið er að skrá sig sem trúleysingja, annars byrjar þýska ríkið að hafa af þér tíund (eða var það ferund…) um leið og þú þénar fyrstu evruna. Með útfyllt eyðublaðið að vopni og vegabréf er bara að skella sér í biðröð (biðin getur svo verið frá c.a. 30 mín til “komdu næsta dag” ). Þegar að afgreiðslunni kemur þá tekur hún bara nokkrar mínútur og maður fer sæll og glaður út með smá pappír, stimplaðan og undirskrifaðan, sem staðfestir að þú búir hér.

Dvalarleyfi
Til að fá dvalarleyfi þarf eitt og annað af gögnum.

  • Vera búinn að skrá sig í borgina (koma með það eyðublað með). Þó svo sama stofnun sjái um dvalarleyfið og skráninguna inn í borgina, þá vita þessar skrifstofur ekki af hvor annari.
  • Sjúkratryggingin þarf að vera komin á hreint (Sjá nánar um sjúkratryggingar hjá Þýska sjúkrakassanum AOK). Það ferli tók ekki nema tæpar 2 vikur.
  • Leigusamning eða einhverja staðfestingu á því að maður hafi húsnæði.
  • Þar sem ég er að vinna hér þurfti ég staðfestingu á því að ég væri launþegi og gæti framfleytt mér.
  • Svo þarf auðvitað að hafa vegabréf.
  • Síðast en ekki síst þarf svo að hafa nýja passamynd. Einfaldast er að fara í þar til gerðan sjálfsala, sem ótrúlegt en satt eru staðsettir víða um þessa stofnun, og taka mynd af sér þar.
  • Eitt box af þolinmæði.

Eftir að hafa beðið í nokkra stund fékk ég loks afgreiðslu. Þar tók á móti mér kona sem hafði af mér öll gögnin. Þegar hún sá að hún var komin með nóg af pappír í hendurnar, þá vísaði hún mér á dyr. Hún vildi fá að vinna gögnin í friði. Tíu mínútum seinna bauð hún mér inn aftur og þá fékk ég loks dvalarleyfið. Dvalarleyfið er smá blað sem er stimplað og undirskrifað.

Staðfest afrit af gögnum
Þar sem við eru að flytja eitt stk. píanó hingað þá þurftum við að senda “staðfest afrit” af bæði skráningunni minni hér í borg og vegabréfi. Til að fá þessi gögn fer maður auðvitað upp í Kreisverwaltungsreferat.
Eftir að hafa rambað um alla bygginguna fann ég loks mitt rétta Warteraum. Þar voru Tür 1 og 3 að afgreiða, en Tür 2 var í sumarfríi. Þetta þýddi að það var nokkuð góð bið þarna. Loks fékk ég þó afgreiðslu.

Fyrsta skrefið var að skrifa reikning. Konan sem tók á móti mér skrifað reikning fyrir því sem ég var að biðja um (hér er ekkert ókeypis). Síðan sendi hún mig út að kassa 007. Ég fór því á stúfana og fann loks kassa 007. Eftir að hafa staðið þar í röð í nokkrar mínútur tókst mér loks að borga. Síðan fór ég aftur inn á skrifstofuna þar sem konan beið eftir mér. Allan tímann meðan ég var að græja borgunina sat hún bara hreyfingarlaus og beið eftir mér. Þetta fannst mér sýna frábært dæmi um það hvað þjónustan er góð þarna. Meðan verið var að afgreiða mig, þá afgreiddi hún engan nema mig. Jafnvel þó svo ég hafi þurft að bregða mér frá í 10-15 mín, þá sat hún bara hreyfingalaus á meðan.
Þegar ég birtist svo með kvittun þess efnis að ég væri búinn að borga, hófst vinnan hjá henni að afgreiða gögnin. Nokkrum mínútum síðar fór ég því út með 2 blöð, stimpluð og undirskrifuð.

Þar með er samskiptum mínum við Das Kreisverwaltungsreferat lokið í bili. Ég hlakka mikið til eftir að fá tækifæri til þess að fara þangað aftur. Hvergi er betra að eyða dagsstund heldur þarna inni.

Athugasemdir (2)

BB King

Tveir miðar á BB King eru komnir í hús. Gamla hetjan verður með tónleika í Olympiahalle 12. september næstkomandi.
Þar sem BB King er búinn að gefa út að þetta sé síðasta tónleikaferðina hans auk þess sem hann er orðinn áttræður, þá er hér líklegast allra allra síðasta tækifæri til að sjá hann á tónleikum. Ég skora því á alla þá sem eru að þvælast hér í nánd á þessum tíma að framlengja dvölina aðeins og koma á tónleikana.

Athugasemdir