Archive for september, 2006

Oktoberfest í fullum gangi.

Síðustu vikuna hefur Oktoberfest verið í fullum gangi hér á Mjaðarvöllum. Það er því búið að vera mikið að gera í bjórdrykkju undanfarna daga. Það vill til að ég er að toppa drykkjuformið þessa dagana. Þetta er eins og með íþróttir, maður verður að toppa á réttum tíma.

Stemmningunni á Oktoberfest er erfitt að lýsa, en kannski segir þessi mynd eitthvað smá:

fullur_1.jpg

Líklegast hefur áfengi eitthvað komið við sögu fyrst ég endaði dansandi uppi á bekk.

Athugasemdir (10)

Licher - Premium Pilsner

Bjór dagsins er að þessu sinni er Permium Pilsner frá Licher brugghúsinu sem er hér norður í sveit. Í þetta skiptið er bjór dagsins ekki drukkinn samhliða ritun greinar heldur var hann drukkinn fyrir nokkrum dögum, nánar tiltekið á lúðrasveitarmótinu í Bad Orb helgina 8. til 10. september.

Sögu þessa brugghús þekki ég ekki neitt, en ég er búinn að innbyrða nokkuð marga lítra af þessum bjór og get því aðeins fjallað um hann.

licher_logo.jpg

Áður en lengra er haldið verður að geta þess að því miður var bjórinn borinn fram í einhverjum þeim allra minnstu dvergkrúsum sem ég hef nokkurn tímann séð. Mig grunar að þetta hafi 0.3 lítra krúsir eða eitthvað enn minna. Þetta er eitthvað sem ég ekki skil. 0.5 lítra krúsir rétt sleppa, en auðvitað slær ekkert út líterskrúsina! Þegar verið er að drekka úr svona fingurbjörgum þarf svo svakalegan fjölda af krúsum fyrir hvern drekkandi einstakling og maður er alltaf að skima eftir nýrri krús.

Bjórinn sem boðið uppá í bjórtjaldinu í Bad Orb var Licher, Preminum Pilsner. Þetta er ljós pilsner 4.9% að styrkleika. Við fyrsta sopa finnst strax að maður er kominn töluvert norður fyrir München. Bjórinn er örlítið rammur, en þó ekki það mikið að það skemmi eitthvað fyrir. Almennt var Pilsinn frá Licher frekar bragðdaufur og skilur ekki eftir sig mikið eftirbragð. En hann má eiga það að hann var mjög léttur og lenti ég því aldrei í því að verða saddur af drykkju, eins og vill gerast þegar þyngri bjórar eru drukknir. Það var því alltaf pláss fyrir einn enn sem er mjög gott.

drykkja.jpg

Það finnst líka langar leiðir að Licher menn, eins og flestir þýsk brugghús, halda í heiðri þýsku Hreinleikalögin sem segja til um hvað bjór má innihalda. Daginn eftir bjórdrykkjuna spratt maður eldhress á fætur og langaði strax í annan. Þessi Hreinleikalög eru eitthvað sem íslensku bjórframleiðendurnir ættu að skoða í stað þessa að fylla bjórinn af maís, andoxunarefnum og fleiri óþverra sem á ekki heima þar.

Athugasemdir (7)

Münchener Kindl Weissbier

Bjór dagsins er að þessu sinni hveitibjórinn frá Hofbräu brugghúsinu hér í borg.

Flestir hafa heyrst minnst á Hofbräuhaus. Það er líklegast eitt frægasta brugghús í heiminum. Ef maður kemur frá Asíu og ferðast um evrópu á fjórum dögum þá er alltaf komið við í Hofbräuhaus og ein eða fleiri krúsir drukknar. Þökk sé þessari miklu frægð, þá er þetta líklegast einn leiðinlegasti staður til að fara á í München, þarna er ekki þverfótandi fyrir ferðamönnum að taka myndir og flissa eins og smástelpur af öldrykkju.

Árið 1589 var þetta fræga brugghús stofnað þegar hertoginn Wilhelm V. var ekki nógu sáttur við þann bjór sem var hægt að fá á þeim tíma. Hann ákvað því að stofna sitt eigið brugghús til að brugga almennilegan bjór.

Bjór dagsin er eins og áður sagði hveitibjórinn frá Hofbräu, Münchener Kindl Weissbier. Þetta er ljós hveitibjór 5.1% að styrkleika.

kindl_weissbier.jpg

Bjórinn er ekki bragðmikill, en það vottar fyrir léttu ávaxtabragði og þá örlítið yfir í banana. Þar með líkist hann frænda sínum Paulaner sem er þekktur fyrir ríkt bananabragð. Við fyrsta sopa fann ég örlítið rammt bragð sem mér fannst ekki nógu gott, það dofnaði þó við frekari drykkju. Þegar líða tók á glasið varð bjórinn alltaf minna og minna spennandi og jaðraði við vatnsbragði af honum undir lokin. Þess ber að geta að þetta var ekki sama vatnsbragðið og vill koma þegar yfir 5 lítrar af bjór eru drukknir í einum rykk.

Ég get því ekki mælt með þessum bjór til frekari drykkju. Hér er til nóg af góðum hveitibjór sem ég mun taka fram yfir þennan.

Athugasemdir

BB King

Fór á þriðjudagskvöldið á tónleika með BB King uppi í Olympiahalle. BB er að ferðast um heiminn til að kveðja aðdáendur. Þegar þessari tónleikaröð lýkur þá ætlar hann ekki að spila meira fyrir utan Bandaríkin. Þetta kemur kannski ekki á óvart enda er hann orðinn áttræður og líkaminn farinn að láta á sjá. Hann talaði um að hnéin væru slæm, bakið aumt, hausinn farinn að klikka… En! Hann gæti blúsað, það væri það eina sem skipti máli.

Það er skemmst frá því að segja að tónleikarnir voru alveg frábærir. Þrátt fyrir þennan aldur er BB í þvílíku fjöri og hefur engu gleymt þegar kemur að gítarleik og söng. Hljómsveitin sem lék með honum var líka mjög þétt, enda skipuð hljóðfæraleikurum sem hafa leikið með honum í allt að 30 ár.

bb.jpg

Hér eru nokkur stutt tóndæmi sem ég náði á myndavélina (því miður léleg mynd og hljóð).

Bútur 1 (23 meg)
Bútur 2 (8 meg)

Það var auðvitað frábært að fá tækifæri til að sjá BB King live á tónleikum. Þvílíkur listamaður þarna á ferð og alveg ótrúleg orka sem hann gat lagt í tónlistina. Jafnvel þó hann sæti allan tímann þá var hann mjög lifandi og gaf sig greinilega allan í þetta.
Þetta eru tónleikar sem gleymast seint.

Athugasemdir

Samfélagslegt aðhald

Óvíða veitir samfélagið manni jafn mikið aðhald og í Þýskalandi. Hér eru sjálfboðaliðalöggur á hverju götuhorni sem passa uppá að allir fari að settum lögum og reglum.

Um síðustu helgi þegar við fórum til Bad Orb, þá lagði ég bílnum mínum ekki alveg nógu vel. Án þess að það truflaði nokkurn þá stóðu svona 15 cm. af bílnum inn í innkeyrslu á húsinu á móti því sem ég var að fara inn. Bílinn var samt engan vegin að minnka möguleika eiganda innkeyrslunnar á því að nota hana. Ég ákvað því að klára að tæma dótið úr bílnum, fara með það upp á hótelherbergi, og færa bílinn að því loknu.

Um það bil 5 mínútum síðar kom ég niður aftur og ætlaði að færa bílinn. Þegar ég kom að honum sá ég að það var kominn miði á framrúðuna. Sekt? Nei, ekki var það svo gott. Þarna hafði eigandi innkeyrslunnar farið og sótt einn miða úr einkasafninu sínu og skellt á rúðuna mína.

Aðrar eins svívirðingar og ruddaskap man ég ekki eftir að hafa séð áður á prenti:

ars.jpg

Í þýðingu hljómar þetta svona:

   Þetta er ekki SEKTARMIÐI en fengi ég einhverju ráðið,
   fengjuð þér tvo slíka. 

   Vegna þess hve þér lögðuð bílnum á fábjánalegan,
   tillitslausan og klaufalegan hátt tókuð þér pláss sem
   annars hefði dugað 20 ösnum, 2 fílum, 1 geit og heilli
   hersveit af Putum!

   Hvers vegna fáið þér þennan miða? Til að í framtíðinni
   hugsið þér einnig af og til um aðra, ekki bara yður
   sjálfa.

   Auk þess þoli ég alls ekki hortuga, sjálfselska og
   grunnhyggna bílstjóra - en þeim hópi tilheyrið þér
   án nokkurs efa.

   Ég kveð og óska yður bráðrar gírkassabilunar - kl. 22
   á hraðbrautinni!

   Auk þess óska ég þess að 1000 úlfaldaflær vitji
   endaþarms yðar!
                       Þýðandi: Finnbogi Óskarsson

Þarna sést vel hvernig samfélagið greip tímanlega inní þegar ég stóð mig ekki nógu vel. Ég á því manninum í þessu húsi mikið að þakka, hér eftir mun ég vanda mig betur þegar kemur að því að leggja í stæði svo ekki sé hægt að saka mig um hortugheit og sjálfselsku.

Athugasemdir (8)

Bad Orb - die Stadt im Park

Um síðustu helgi lögðum við Ásta land undir fót og keyrðum norður í sveitir landsins, nánar tiltekið til skemmti- og gleðibæjarins Bad Orb. Ferðinni var heitið á risastórt lúðrasveitarmót sem haldið er þar annað hvert ár. Þangað komu yfir 20 lúðrasveitir frá hinum og þessum löndum (en þó flestar frá Þýskalandi).
Um sögu bæjarins veit ég fátt annað en að meðalaldur íbúa er handan grafarbakkans.

Lúðrasveitin Svanurinn var að fara þarna í þriðja sinn núna í haust. Þökk sé skyldleika við stjórnanda Svansins tókst mér að troða mér þarna inn. Það má auðvitað ekki gleymast að ég er alvanur básúnuleikari, eins og sést á þessari mynd af okkur Finnboga, þannig að það var gríðarlegur styrkur fyrir hljómsveitina að fá inn mann sem hafði ekki spilað á básúnu í mörg ár.

alvanur.jpg

Þessi ferð var í alla staði frábær. Það var auðvitað rosalega gaman að hitta krakkana í Svaninum. Jafnvel þó ég hafi varla þekkt nokkurn mann þarna þá small ég strax inn á fyrsta bjór. Það eru greinilega bara ákveðin gerð af fólki sem tekur þátt í þessum félagsskap :)
Stemmningin í bjórtjaldinu var auðvitað rosalega allan tímann. Band hússins var byrjað að spila í kringum hádegi og svo endaði kvöldið á því að ferskustu lúðrasveitirnar voru komnar upp á borð til að skemmta sér og öðrum.

olvun.jpg

Auðvitað var svo löng og góð skrúðganga, en því miður þá var hvorki rok né rigning í þetta skiptið eins og maður á að venjast 1. maí og 17. júní á Íslandi.

gangan.jpg

Eftir góða helgi, 8 vínarsnitzel, 7 bratwurst, 15 lítra af bjór, knödel með rauðkáli og 4 kíló af frönskum kartöflum héldum við svo heim á leið á sunnudagskvöldið.

Bjórinn í ferðinni mun svo fá nánari umfjöllun undir liðnum “Bjór dagsins” á allra næstu dögum.

Athugasemdir (6)

Hacker-Pschorr Oktoberfest Märzen

Bjór dagsin kemur að þessu sinni frá Hacker-Pschorr brugghúsinu hér í München.
Hacker-Pschorr var eitt sinn tvö aðskilin brugghús, Hacker og Pschorr. Árið 1972 sameinuðust þau í Hacker-Pschorr (gaman þegar úr verður alveg nýtt nafn þegar tvö fyrirtæki sameinast). Sögu Hackers brugghúsins má rekja allt aftur til 1417. Þarna er því nokkur reynsla sem ætti klárlega að skila sér beint í bjórinn.

Bjór dagsins er Oktoberfest bruggið frá Hacker-Pschorr. Þetta er dökkleitur lagerbjór, 5.8% að styrkleika.

hacker.jpg

Í þetta skiptið var ég ekki svikinn, hér er á ferðinni frábær bjór. Það er ríkt maltbragð af honum og minnir hann helst á Tékkneskan Böðvar, þó er meira karamellubragð af honum heldur en Böðvarnum. Bjórinn rennur ljúft niður og kemur strax upp löngun í annan bjór. Það eitt er mikið styrkleikamerki sem ekki allir bjórar hafa.
Það er ágætt að minnast á það að núna er ekki nema rétt rúm vika þangað til Oktoberfest hefst. Þar mun ég væntanlega kíkja ofan í nokkrar krúsir af þessu bjór. Það er örugglega ennþá meira gaman að drekka hann úr líterskrús heldur en venjulegu glasi.

oktoberfest_bild.jpg

Tveggja vikna bjórhátíð, það hentar mér ágætlega.

Athugasemdir (5)

Freising

Um daginn fékk ég mér hjólatúr upp í Freising sem er hér norður af München. Freising er líklegast einna frægast fyrir að þar er elsta starfandi brugghús í heiminum, Weihenstephan.
Leiðin frá München liggur í gegnum dimman skóg meðfram ánni Isar. Á einstaka stað var þó hægt að sjá eitthvað annað en tré og þá glitti oftast í nakta þjóðverja sem voru að sóla sig við ánna. Af einhverjum orsökum virðist þjóðverjinn hreinilega ekki vera sáttur nema hann fái að liggja allsnakinn úti í sólinni.

isar.jpg

Eftir um það bil 45 km. hjólatúr komst ég loks á áfangastað.

freising.jpg

Það kemur á óvart hvað getur verið gaman að hjóla þegar maður er ekki að glíma við brekkur, mótvind og rigningu eins og maður er vanur að heiman. Svo er auðvitað ansi þægilegt að geta hoppað upp í lestina ef maður nennir ekki að hjóla aftur heim.

Athugasemdir

Stóra kebab hneykslið

Í fréttum undanfarna daga er mikið búið að ræða um stóra kebab hneykslið í Þýskalandi. Það kom í ljós að eitthvert fyrirtækið var að selja marga ára gamalt kjöt til kebab matsölustaða.

kebab.jpg

Eftir að hafa borðað kjúklingakebab í Berlín síðasta sumar og tekið afleiðingum þess margar vikur á eftir, þá kemur þetta mér ekki á óvart. Ég hugsa að enginn geti gert greinarmun á góðu og/eða nýju kebab kjöti eða bara gamalli drullu sópaðri upp úr gólfinu. Þegar búið er að þræða viðbjóðinn upp á teininn og krydda og salta þá deyr allt náttúrulegt bragð af kjötinu (hafi það eitthvað verið). Jafnvel ríkt þráabragð hverfur þegar kebab kryddið er búið að leika um kjötið.
Það virðist líka vera skilyrði fyrir kebab matsöluleyfinu hér að vera sveittur tyrki sem kann ekki að þrífa sig eða í kringum sig.

En jafnvel þó svo þessi matur sé algjör óþverri, þá er fátt betra eftir að hafa setið að sumbli að fá sér sveittan kebab með miklum lauk og extra mikilli sósu. Það tryggir líka veikindi daginn eftir sem eru ekki alltaf vís ef maður drekkur bara bjór.

Athugasemdir (5)