Archive for október, 2006

Georg í Höllinni

Við Ásta skelltum okkur á tónleika með George Michael í Höllinni í gærkvöldi. Tónleikarnir eru hluti af Live 25 tónleikaferðinni sem er í gangi núna hjá honum.

goggi.jpg



Húsið var nánast fullt og rosa góð stemmning í salnum. Það er greinilegt að þau hugvíkkandi efni sem Georg notar skila sér alla leið, tónlistin er flott og hann virtist afslappaður og sæll.

goggi2.jpg

Athugasemdir (4)

Schindler’s Schnitzel

Þeir sem sáu Schindler’s Lists á sínum tíma, og voru ánægður með, ættu ekki að láta fara fram hjá sér opnuna á Schindlers’s Schnitzel í næstu viku.
Hér er semsagt að fara opna Schnitzel sérfræðingur í tveggja mínútna göngufjarlægð frá heimilinu okkar hér á Mjaðarvöllum.

logo_s.gif

Þeir sem til þekkja vita að Schnitzel að hætti Bæjara stendur öðrum mat ljósárum framar þegar kemur að svokölluðu “þynnkufæði”. Þetta litast helst af því að í einu Schnitzeli með frönskum kartöflum nær maður að innbyrða fituskammt sem mætti nota til þess að kynda fjölbýlishús í 3 vikur. Þetta slær því auðveldlega út klassíska hamborgarann sem er vinsæll á Íslandi.

Verðlistinn hjá Schindler er kominn upp og sýnist mér að ég fái fyrir rúmlega 8 EUR Schnitzel, franskar og drykk (ætli verði ekki bara boðið upp á bjór). Þetta verður því vel samkeppnishæft við aðra staði hér í kring og gæti jafnvel bjargað lífi manns eftir t.d. erfiðan aðalfund hjá Félaginu.

Athugasemdir (5)

Gleðilegan vetrartíma

Í nótt breyttist klukkan víða í Evrópu. Ég náði því að sofa í 8 tíma á aðeins 7 tímum, sem verður að teljast ágætt.

Þökk sé þessari breytingu þá verður nokkurnveginn komið myrkur þegar vinnu lýkur síðdegis. Núna verður maður því að taka þýsku aðferðina á þetta og rífa sig upp milli 5 og 6 á morgnana til að njóta dagsbirtunnar.

Athugasemdir

Trúnaðarstörf fyrir Félagið

Í gær hélt Símon, Samtök Íslendinga í München og nágrenni, árlegan aðalfund félagsins. Fundurinn var haldinn á skemmtilegri knæpu sem heitir Scheidegger og er ekki langt frá miðdepli Münchenar (Schellingstrasse 105).
Stjórnin sá til þess að enginn yrði þyrstur, það voru því keyptar tunnur af Augustinerbjór sem ég og aðrir fundarmeðlimir gerðu góð skil.

Fyrir fundinn hafði ég lýst áhuga á því við stjórnina að sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið. Mér varð að ósk minni og núna hef ég titilinn Vefstjóri og heyri ég beint undir stjórn félagsins. Á næstu vikum mun ég því fara í endurbætur og breytingar á vefsetri félagsins.

Eftir fimmundasöng og nokkra Jägermeister herða lá leiðin svo í Kultfabrik. Þetta er risastórt svæði í austurbænum sem var eitt sinn kartöfluverksmiðja, en þegar hún var lög niður var svæðinu breytt í party zone. Þarna er fullt af klúbbum sem spila allt milli himins og jarðar, en auðvitað mest af þýskri eðaltónlist. Eftir óþarflega marga bjóra (og tequila sem var algjörlega ofaukið) lá leiðin á næstu subbulegu kebabbúllu og svo heim í koju.

Þökk sé því að ég fór ekki heim beint eftir aðafund eins og réttast hefði verið, hófst dagurinn í dag ekki fyrr en um kvöldmat. Á tímabili í dag var ég meira að segja hættur að drekka, en það tímabil er liðið hjá og ég lít björtum augum, fullur tilhlökkunnar, til næstu bjórdrykkju.

Athugasemdir (5)

Sérfræðiþjónusta

Eitt sem er skemmtilegt hérna á Mjaðarvöllum er sú mikla sérfræðiþjónsta sem maður getur gengið í. Ef maður velur réttu búðirnar þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að það taki á móti manni 13 ára gamall sumarstarfsmaður sem þekkir ekki viðfangsefnið.

Á ská á móti þar sem við búum er sérfræðingur í prenthylkjafyllingum. Þar getur maður mætt með tóma blek- eða tónerhylkið sitt og fengið fyllingu. Þessi maður gerir semsagt ekkert annað en að fylla á tóm hylki. Ef þig vantar til dæmis prentara eða nýtt fullt blekhylki, þá fer maður í tölvubúð, þessi tekur bara við tómum hylkjum og fyllir.

Hér rétt fyrir ofan er búð sem selur bara egg. Þar er hægt að kaup ný ferk egg frá einhverjum bónda suður í sveit. Eins og góðum sérfræðingi sæmir fæst ekkert annað þarna. Viðkomandi er sérfræðingur í eggjum.

Í miðbænum er (eða allavega var, veit ekki alveg hvort hún er ennþá) búð sem selur tannbursta. Venjulegur leikmaður getur auðvitað fengið áhugamanntannbursta í kjörbúðinni, en þarna er hægt að fá tannbursta sem hentar þínu tannsetti. Auðvitað tekur sérfræðingur á móti þér og mátar bursta þar til hinn eini sanni finnst.

Ekki þarf að minnast á að hér eru út um allt sérfærðingar í Lederhosen. Þeir sérhæfa sig bæði í nýjum buxum og svo annarar- til þriðju kynslóðar buxum.

Hér er líka fjöldinn allur af litlum búðum sem selja bara grænmeti, bara ávexti, bara vín, bara kjöt og svo framvegis. Að fara í kjörbúð er því algjört neyðarúrræði þegar ekki finnst sérfræðingur í viðkomandi vöru. Til dæmis hef ég ekki ennþá fundið sérfræðing í klósettpappír. Ég er því ennþá að kaupa áhugamannapappír í kjörbúðinni í stað þess að fá sérvalinn pappír hjá sérfræðingi.

Athugasemdir (3)

Kebab án magapínu?

Það ótrúlega hefur gerst. Ég smakkaði í gær Kebab sem olli ekki neinni vanlíðan og var auk þess mjög bragðgóður.

Hingað til hafa samskipti mín við kebab staði í Þýskalandi (já og á Íslandi) ekki verið eins og best verður á kosið. Verst fór ég þó út úr léttsteikta kjúklingakebabinu sem ég fékk mér í Berlín síðasta sumar. Ég saup seiðið af þeim mat í nokkuð margar vikur þar á eftir.

En allavega, eftir að hafa ráðfært við mig helstu kebab notendur hér á Mjaðarvöllum þá er einn kebab staður hérna aðeins neðar í hverfinu sem er að standa sig mjög vel.

Það sem hann hefur fram yfir flesta subbuviðbjóðskebabstaði er:

  • Brauðið er grillað í ofni. Flestir subbustaðir eru annað hvort með brauðið kalt eða setja það í örbylgjuna þannig að það verður sveitt og minnir meira á þvottapoka en brauð.
  • Kjötið er 100% kálfakjöt. Án þess að menn auglýsi það sérstaklega þá er ýmislegt sem endar á kebab teininum, allt frá hundakjöti niður í gólftuskur.
    Þeir allra grófustu eru svo bara með kjötfars búðing á teininum. Það er líklega einhver mesti viðbjóður sem hægt er að þræða upp á tein.
  • Út af ferskleika kjötsins kemst viðkomandi staður upp með að krydda kjötið mátulega í stað þess að maður fái mánaðarskammtinn af salti og MSG í einum kebab bita.
  • Á þessum stað býr eigandinn til nýjan tein á hverjum morgni (og svo annan eftir hádegið). Flestir aðrir eru með tein á stærð við fílsfót sem “endist” í marga daga og er því oft farinn að þrána þegar maður mætir og vill fá sinn kebab, kannski 5 dögum eftir að teinninn var hlaðinn
  • Mátulegt magn af grænmeti og lauk. Oft þurfa staðir að hafa mikið af lauk til þess að deyfa óþverrabragðið sem kemur af kjötinu þegar það er orðið gamalt.
  • Mátulegt magn af sósu. Þessi þarf ekki að fela óbragðið af kjötinu í sósu sem síðan endar oftast í fanginu á manni þökk sé óhóflega miklu magni

Það eina sem hægt er að setja út á þennan stað er að hann er ekki opinn þegar þörfin er hvað mest fyrir þennan mat. Það vill nefnilega brenna við að mann langi í kebab þegar maður er á heimleið eftir að hafa drukkið 1-2 bjóra seint á kvöldin.

Athugasemdir (8)

Oktoberfest lokið

Síðasta þriðjudag lauk Oktoberfest. Núna verður aftur hægt að nota almenningssamgöngukerfið hér í borg án þess að allt sé fullt af öfurölvi hátíðargestum. Það verður líka gott að fá aftur gömlu góðu lestargangafýluna í stað þessarar römmu áfengisstybbu sem hefur legið yfir í þeim vögnum sem ganga upp á Engin.

Síðasta föstudag bauð heiðurskonsúll Ísland í München, Herr Schwarz, öllum íslendingum á stór Mjaðarvallasvæðinu til stórveislu í Hofbräu tjaldinu. Af því tilefni var þessi mynd tekin:

asta_og_bo.jpg

Vegna þess hve mikill bjór var í boði, þá eru allar hinar myndirnar á þessu formi hér (hreyfðar og hristar):

breidur.jpg

Ef vel er að gáð má sjá móta fyrir mér að syngja eitthvað skemmtilegt þýskt stuðlag (líklegast 99 Luftballons).

Hér er svo ein sem sýnir yfir bjórtjaldið hjá þeim Hofbräu mönnum:

tjaldid.jpg

Á svæðinu eru 14 svona “tjöld”. Þau eru reyndar miklu nær því að vera stór hús en tjöld. Hvert þeirra tekur á bilinu 5.000 - 10.000 manns í sæti. Samtals eru í kringum 100 þúsund “drekkandi/étandi/ælandi/dansandi” sæti í þessum tjöldum. Allan tímann eru tjöldin svo stútfull að erfitt er að fá sæti nema koma snemma morguns (sem er frekar erfitt þegar maður þarf líka að vera í vinnunni).

Þetta árið komu um það bil 6.5 milljónir gesta á hátíðina og drukku þeir álíka marga lítra af bjór þessa 16 daga sem hún stóð. En betur má ef duga skal! Hvar eru allir bjórdrykkjumennirnir sem ég þekki? Af hverju komu þeir ekki á svæðið og drukku sig í barndóm? Finnst engum bjór góður lengur eða hvað?

Athugasemdir (6)