28 nóvember 2006 kl. 9:16 pm
· Tilheyrir Annað
Síðustu vikur hafa einkennst af mikilli vinnu (þjóðverjinn segir einmitt iðulega “Vinnan göfgar manninn”), því hefur lítið verið ritað hér.
Helstu fréttir eru þó þessar:
Bjórkúturinn góði kláraðist fljótt og vel um daginn. Það tók reyndar sinn tíma að komast ofan í kútinn þar sem kraninn sem ég var með passaði ekki. En þar sem á staðnum var einn stærðfærðingur (sem var fljótur að skilgreina vandmálið) og nokkrir verkfræðingar (sem gátu unnið úr skilgreiningu stærðfræðingins), þá tókst að nálgast bjórinn.
Það er skemmst frá því að segja að kúturinn kláraðist strax. Auk þess kláraðist allur bjór sem ég átti í flöskum (c.a. 15 lítrar) og koníaks peli sem ég átti fékk að finna fyrir því. Þegar uppi var staðið var eina áfengið í húsinu “smakk” af einhverjum Mozart líkjör. Ótrúlegt að hann hafi ekki verið drukkinn líka.
Næst þarf 50 lítra tunnu svo enginn fari þyrstur heim.
Þar sem ég missi af árlegri ferð SÍMONar í morgunarverðarhlaðborðið á Orlando (fínn veitingastaður niður í bæ) á 1. desember, þá ákváðum við Siggi Valur að kíkja þangað á síðasta laugardagsmorgun. Algjör snilld að geta fengið sér staðgóðan morgunverð áður en maður fer að sofa.
Á föstudaginn hefst svo stóra Íslandsferðin. Vinir og kunningjar hafa verið duglegir að bjóða mér í veislur þannig að ég ætti ekki að líða skort. Svo mikið hefur gengið á í bókunum að ég hef ítrekað lent í tvíbókunum. Held þó að ég sé búinn að græja það allt saman.
Auf Wiedersehen
Brynjar
Tengill
22 nóvember 2006 kl. 11:56 am
· Tilheyrir Annað
Undirritaður verður á Klakanum í byrjun desember í tvær vikur.
Heimboð sem samanstanda af matarveislu og bjór eru vel þegin.
Brynjar
Tengill
10 nóvember 2006 kl. 11:46 am
· Tilheyrir Þýskaland
Eins og ég hef áður minnst á þá er óvíða jafn mikið aðhald sem samfélagið veitir manni og hér á Mjaðarvöllum.
Ein af mínum uppáhalds reglum er “Links gehen, rechts stehen”. Þessi regla stendur fyrir ofan flest alla opinbera rúllustiga í borginni (og þeir eru ansi margir út af neðanjarðarlestakerfinu).
Reglan vísar til þess að í rúllustigum stendur maður hægra megin ef maður ætlar EKKI að labba með. Ef þú ÆTLAR að labba með stiganum, þá ferðu vinstra megin.
Auðvitað gerist það að einhverjir brjóta þessa reglu. Þá kemur sér vel að tvær óskráðar lagagreinar ná yfir málið
Gagnvart þolanda:
Nú stendur einstaklingur hreyfingarlaus vinstra megin í rúllustiganum og teppir för þína. Þér er þá heimilt að veita viðkomandi þéttingsfast olbogaskot í síðu. Áður en olbogaskotið er gefið ber að segja hátt og snjallt “Entschuldigung” í hægra eyra geranda. Þegar þú kemst fram hjá er mikilvægt að hnussa hátt og snjallt framan í viðkomandi.
Gagnvart geranda
Nú stend ég hreyfingarlaus í tröppu vinstra megin án þess að gera mér grein fyrir því að það er alveg stranglega bannað. Ég á þá heimtingu á því að Samfélagslögreglan öskri í hægra eyrað á mér “Vorsicht” og gefi mér í kjölfarið kraftmikið olbogaskot í síðuna sem verður til þess að ég fell hægra megin í stigann og trufla ég þar með ekki umferð gangangdi fólks vinstra megin lengur. Ef ég næ andanum eftir olnbogaskotið þá er sjálfsögð kurteisi að kalla “Danke” á eftir viðkomandi Samfélagslögreglumanni.
Engin skömm er meiri en að láta góma sig vinstra megin í rúllustiga án þess að vera labbandi.
Tengill
7 nóvember 2006 kl. 9:11 pm
· Tilheyrir Annað
20 lítrar af Augustiner bjór í trétunnu komnir í hús.
Tengill
6 nóvember 2006 kl. 9:52 pm
· Tilheyrir Bjór dagsins
Bjór dagsins er að þessu sinni Paulaner Salvator, Starkbier, frá Paulaner brugghúsinu hér í borg.
Þrátt fyrir að nafnið virðist gefa til kynna að þarna sé á ferðinni sterkur bjór (í % talið) þá vísar nafnið til þess hversu matarmikill bjórinn er. Reyndar er þessi bjór langt yfir meðallagi í styrkleika. Flaskan sem ég er að drekka núna 7.9% sem er ansi miklu meira en frændbjórarnir hér í kring.
Salvator bruggið er dökkur bjór. Liturinn er svona karamellulitaður og jafnvel örlítið út í rautt. Strax við fyrsta sopa finnur maður að hér á ferðinni alvöru bjór. Hann er mjög bragðmikill og jafnvel örlítið rammur. Ég veit ekki alveg á hvað bragðið minnir, en þetta er eitthvert sambland af dökkri karmellu, sóti, vaxi og humlum. Áferðin er hins vegar mjög skemmtileg og mjúk, minnir helst á rjóma, rennur m.ö.o. ljúft niður.
Hér er svo auðvitað Starkbier fest sem er venjulega í mars og apríl. Ég hef ekki enn upplifað þessa hátíð, en hlakka mikið til þegar hún hefst. Sagan segir að þökk sé miklum styrkleika bjórsins verði allir þeir sem krús geta valdið svo svartir af öli að annað eins þekkist varla. Menn gleyma stað og stund og muna auðvitað ekkert daginn eftir.
Ég finn að styrkur bjórsins kemur mjög skemmtilega til leiks. Bara eftir hálfan lítra af þessum bjór er ég orðinn töluvert skemmtilegri en vanalega. Ég veit ekki hvernig ég verð á Starkbierfest þar sem maður drekkur svona bjór allt kvöldið. Ansi verð ég kátur…
Tengill
4 nóvember 2006 kl. 12:52 pm
· Tilheyrir Annað
Þegar ég vaknaði í gærmorgun sá ég að fyrsti snjórinn var fallinn. Áður en Húsvörðurinn kom og sópaði öllum snjónum saman og setti í ruslið náði ég þessari mynd:
Áhugafólk um lagningu bíla sér þarna eina af dauðasyndunum. Það er auðvitað stranglega bannað að leggja bílum í portinu. Nú hefði komið sér vel að vera búinn að fjölfalda áminninguna sem ég fékk um daginn.
Tengill