Archive for desember, 2006

Jólakort

Við Ásta þökkum öllum þeim fyrir sem sendu okkur jólakort.
Þetta árið náðum við ekki að senda eitt einasta kort. Hver veit nema bót verði á því um næstu jól.

Auf wiedersehen.

Athugasemdir

Nokkrar myndir frá Austurríki

Hér eru nokkrar myndir úr skíðaferðinni til Zell am See:

skidi1.jpg

Kominn upp á tind, aðeins nokkrar sekúndur þar til ég brunaði fetið niður brekkuna

skidi2.jpg

Það var ekki hægt að kvarta yfir veðrinu, heiðskýrt og sól alla daga

skidi3.jpg

Það kom sér vel að gamla 15 ára skíðaúlpan var svo gott sem ennþá í tísku

skidi4.jpg

Ásta tilbúin að bruna niður

skidi6.jpg

Auðvitað var svo bjórgarður efst á hæsta tindinum

skidi7.jpg

Þrátt fyrir stórfengleg tilþrif í brekkunum gekk ferðin stórslysalaust fyrir sig. Það er helst að maður sé lúinn í löppunum, enda tekur það vel á fyrir kyrrsetumann að skíða 6 daga í röð.

Athugasemdir (3)

Á skíðum

Skíðaferðin okkar gengur vonum framar. Hér er heiðskýrt, logn og 2-3 stiga frost upp í brekkum.
Nægur snjór er í hlíðum fjallanna og ég er að sýna stórkostlega, áður óþekkta, takta á skíðunum. Ég skil ekki alveg hvað rúv.is er að væla um rauð jól í Ölpunum.

Hins vegar þarf að kenna þessum austurríkismönnum að brugga bjór. Bjórinn hérna er voðalegt piss. Það var algjör klúður að taka ekki með 2-3 bjórkassa frá München.

Athugasemdir (4)

Jólakveðja

Ég óska lesendum nær og fjær gleðilegra jóla.

Við Ásta, ásamt foreldrum hennar, erum farin á skíði til Austurríkis (Zell am See) og verðum þar meðan mesta hátíðin gengur yfir.

Zell_am_See_2.jpg

Við komum svo aftur fyrir áramót til München. Þá þurfum við að kaupa púður og rörbúta til að geta sprengt almennilegar hafnfirskar rörasprengjur hér um áramótin.

Auf wiedersehen.

Athugasemdir (4)

Hveitibjór á Íslandi.

Þá er ég loksins búinn að jafna mig eftir stóru Íslandsferðina sem var í byrjun desember.

Það sem helst stendur uppúr er að ég lærði að maður á ekki að sitja í 12 klukkustundir og drekka á þeim tíma 12-15 hveitibjóra. Þó svo það sé gaman meðan á því stendur, þá er líkaminn nokkra daga að jafna sig eftir svoleiðs rugl. Hveitibjór skyldi aðeins drekka í hófi. Ljósan lagerbjór er hins vegar ekki bara gott, heldur líka hollt, að drekka í óhófi.

Á laugardaginn hefst svo skíðaferðin til Austurríkis. Ég er búinn að finna til stuttbuxurnar, þannig að það er allt tilbúið. Snjórinn hlýtur svo að láta sjá sig í janúar eða febrúar.

Athugasemdir (4)

Heitt í Ölpunum

Skv. Morgunblaðinu (sem fer auðvitað aldrei með rangt mál) þá hefur ekki verið heitara í Ölpunum í nokkur hundruð ár. Skíðaferðin sem ég hafði stefnt á um jólin gæti því endað sem gönguferð um Alpana í stuttbuxum (þ.e. Lederhosen) frekar en á skíðum.

Ætli eina ráðið til að komast á skíði sé ekki bara að taka “Akureyri dörtí wíkend” pakka hjá Villa. Villi: Munar þig nokkuð um að fá fjóra fullorðna til þín yfir jólin í gistingu og fullt fæði (auk þess sem þú þyrftir að sjá um skíðakennslu fyrir mig og bjóða upp á slökunarnudd eftir erfiðan dag í skíðabrekkunni)?

Athugasemdir (4)