Heimurinn fylgist með okkur
Stórfrétt frá München: 11% Þjóðverja vita af Heimsmeistarmótinu í handbolta.
Stórfrétt frá München: 11% Þjóðverja vita af Heimsmeistarmótinu í handbolta.
Bjór dagsins í dag, í gær, á morgun og flesta aðra daga er Augustiner - Lagerbier Hell.
Þetta er í annað sinn sem þessi bjór er Bjór dagsins. Ástæðan er einföld: Þetta er besti bjór í heimi. Fyrri skrif eru ennþá í fullu gildi og verður þetta því ekki lengra.
Bjór dagsins, eftir langt hlé, er að þessu sinni Andechser - Bergbock Hell sem kemur frá Andechs klaustrinu sem er hér fyrir sunnan München.
Bjór hefur verið bruggaður í Andechs klaustrinu frá því 1455. Það er því komin nokkur bruggreynsla þar á bæ eins og víðar hjá brugghúsum hér í Bæjaralandi.
Árlega eru bruggaðir í kringum 9 milljón lítrar af bjór í klaustrinu og af þeim eru um það bil 10% bornir fram á bjórknæpunni á staðnum. Brugghúsið leggur áherslu á góð tæki til framleiðslunnar auk þess sem bjórinn fær þann tíma sem hann þarf til að gerjast eðlilega.
Bergbock Hell er eins og nafnið getur til kynna ljós og sterkur bjór, 6.9%. Hann er mjög bragðmildur (milt humlabragð) og rennur ljúft, og og ekki síst hratt, niður. Þrátt fyrir að vera þetta sterkur er alls ekkert áfengisbragð af honum eða neitt annað (ó)bragð sem stundum vill einkenna sterkari bjóra. Bjórinn er frekar goslítill, en það passar mjög vel við bjór af þessum styrkleika.
Eftirbragðið er einnig mjög gott. Þó kemur smá rammt bragð upp í munninn í lokin, en það skemmir alls ekki fyrir heldur gefur bjórnum skemmtilegan karakter.
Bjórinn er nokkuð matarmikill og hentar því líklegast ekki í magn og/eða kappdrykkju. Hann er því kjörinn fyrir “Einn bjór fyrir svefninn” aðstæður (enda sér styrkurinn í bjórnum til þess að maður sofnar eins og ungabarn).
Síðasta sumar fór ég, ásamt Ástu og Finnboga, í hjólaferð í Klaustrið. Það vita þeir sem þekkja að hvergi er betra að drekka bjór en þar sem hann er bruggaður. Reyndar kom mér það í opna skjöldu að bjórinn var borinn fram í dvergkrúsum í klaustrinu.
Á heildina litið er þetta hinn besti bjór. Ekki góður til magndrykkju, en virkilega góður til þess að smakka á á góðri stundu.
Vart þarf að minnast á það að þessi bjór er bruggaður samkvæmt Þýsku Hreinleikalögunum. Það er því ekki hægt að búast við því að liggja veikur í koju daginn eftir neyslu þessa bjórs. Fyrir þann leik mæli ég hins vegar eindregið með Egils Premium, því íslenska rusli.
Um síðustu helgi var skíðaferð SÍMONAR. Stefnan var tekin á Kaltenbach í Austurríki á svæði sem kallast Hochzillertal.
Auðvitað var frábært veður allan tímann eins og alltaf í útlöndum
Fögur er hlíðin.
Þeir þá fáu sem enn smakka áfengi í Félaginu gátu auðvitað fengið sér lítinn bjór milli skíðaferða (á þessari mynd sést einmitt svo vel hvað skíðaúlpan mín er mikil tískuflík):
Eftir góðan dag í brekkunni lá leiðin svo auðvitað í létt eftirskíðapartý.
Morgunblaðið á netinu flytur okkur stórtíðindi í dag.
Egils Premium bjór verður fluttur til Þýskalands
Fyrir þá sem til þekkja eru þetta auðvitað stórtíðindi.
Hingað til höfum við íbúar á Mjaðarvöllum þurft að sætta okkur við bjór sem er bruggaður skv. Þýsku Hreinleikalögunum frá 1516 og aðeins seldur í glerflöskum. Þessi bjór hefur þann leiðinlega eiginleika að maður verður ekki þunnur og slappur daginn eftir, jafnvel þó svo 3-5 lítrar séu drukknir í einum rykk.
Núna getum við vonandi keypt okkur bjór, bruggaðan úr íslensku hráefni og borinn fram í funheitri áldós.
Fyrir utan að maður liggur veikur daginn eftir með hausverk, uppköst, niðurgang, bjórleiða og fleiri sjúkdóma eftir þennan bjór, þá er hægt að halda grettukeppni þegar bjórinn er borinn fram. Þetta ramma bragð fær fólk til að sýna ótrúlegustu grettur.
Íslenskt - Já Takk
Áramótin hér í München fóru vel fram. Við Ásta, ásamt foreldrum hennar, borðuðum á ítölskum veitingastað sem heitir Tambosi og stendur við Odeonsplatz.
Við borðuðm fimm rétta máltíð og drukkum auðvitað fullt af Augustiner bjór til að skola veislunni niður. Milli rétta fluttu nemendur úr einhverjum óperuskólanum hér í borg heimagerða óperu. Maturinn á Tambosi var rosalega góður og skemmtiatriðin fín. Þetta var því hin skemmtilegasta kvöldstund.
Á miðnætti fórum við út á Odeonsplatz með kampavínsflösku og fylgdumst með þegar heimamenn sprengdu hurðasprengjur og kveiktu á stjörnuljósum til að fagna nýju ári. Svo lítið var sprengt að þetta minnti á venjulegt mánudagskvöld á Íslandi… í febrúar.
Um klukkan 01:00 á nýársnótt þagnaði svo borgin og allir fóru að sofa.
Eitt og annað mætti kenna þjóðverjum þegar kemur að því að halda áramót:
Gleðilegt nýtt ár!