Til Íslands
Á morgun er það ferð til Íslands. Verð þar í nokkra daga.
Það verður gott að komast í kuldann og rokið. Hér er búið að vera vorveður síðustu vikur, og því hefur auðvitað fylgt að hægt er að sitja úti í bjórgarði á daginn.
Á morgun er það ferð til Íslands. Verð þar í nokkra daga.
Það verður gott að komast í kuldann og rokið. Hér er búið að vera vorveður síðustu vikur, og því hefur auðvitað fylgt að hægt er að sitja úti í bjórgarði á daginn.
Bjór dagsins er í þetta sinn Tegernseer Hell aus der Herzoglich Bayerischen Brauhaus Tegernesee KG. Brugghús þetta er staðsett um það bil 50 km. suður af München við vatnið Tegernsee.

Frá því um það bil 1050 hefur verið fiktað við bjórgerð í þessu Brugghúsi, en sagan nær þó lengra aftur, eða til ársins 746. Eins og víðar voru þarna munkar á ferð sem brugguðu til að svala sínum sárasta þorsta.
Bjórinn sem ég smakka frá þeim í þetta sinn er Tegernseer Hell. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta ljós lagerbjór. Bjórinn er 4.8% að styrkleika og auðvitað bruggaður samkvæmt þýsku hreinleikalögunum. Einnig er bjórinn seldur í eins flöskum og Augustiner frændi og var það í raun það sem olli því að ég keypti þennan bjór í kjörbúðinni áðan.
Um leið og bjórnum er hellt í glasið kemur í ljós að þarna er ekkert rusl á ferð. Ég næ að sturta bjórnum í glasið í einum rykk án þess að froðan flæði út um alla íbúð .
Bjórinn er frekar sætur og nokkuð mikið humlabragð miðað við helles bjór. Jafnvel að hann sé örlítið of rammur fyrir minn smekk, en þó ekki. Hann skilur hins vegar eftir sig ljúft eftirbragð sem aftur hvetur til næsta sopa. Þetta er keðjuverkun sem maður vill gjarnan að bjór viðhaldi. Miðað við hvað bjórinn er ljós í glasinu, þá kemur mér á óvart hvað hann er bragðmikill.
Ég hugsa að þetta sé bjór sem maður gæti hæglega drukkið nokkra lítra af vandræðalaust. Hann er frekar léttur og rennur ljúft niður. Ég held að það samt forgangsmál hjá mér að komast í brugghúsið og smakka bjórinn í sínu náttúrulega umhverfi. Þá fyrst er hægt að dæma hann almennilega.
Veislan sem haldin var á Schelling um síðustu helgi náði ákveðnum hápunkti þegar breakdance keppnin loks hófst.
Um leið og fyrsti þáttakandi hafði lokið keppni var ljóst að fleiri myndu ekki taka þátt. Í raun átti enginn séns í að gera betur eftir að Sigurvegarinn hafði sýnt snilli sína.
Hér má sjá mynd sem tekin var meðan á keppninni stóð. Af tillitssemi við Sigurvegarann, nánustu fjölskyldu hans, vinnufélaga, vini og fjarskyldra ættingja hefur hann verið gerður algjörlega óþekkjanlegur á þessum myndum:
Það atriði sem dómari taldi skara framúr og í raun engan veginn hægt að jafna var Ormurinn. Vart þarf að minnast á að Sigurvegarinn náði Orminum lýtalausum.
Næst á eftir Orminum kom svo Vindmyllan en því miður náðust ekki góðar myndir af henni sökum þess hversu hratt Sigurvegarinn snérist á stofugólfinu.
30 lítra bjórtunna, full af Augustiner bjór, komin í hús.
Á morgun, kl. 18:00, eru allir velkomnir í mat og bjór. Ég lofa því að enginn fari þyrstur eða svangur heim.
Brynjar.