Stóra óperuferðin - Einstakt tækifæri
Í byrjun maí er væntanlegur til hingað til München bjór- og óperuaðdáandi frá Íslandi í menningarferð.
Fyrirhugað er að sjá tvö meistarastykki í Bayerische Staatsoper. Annars vegar er það Der fliegende Holländer eftir eftir meistara Wagner og hins vegar er það Der Rosenkavalier eftir stórskáldið Strauss.
Vegna mikils hamagangs og hávaða í miða innkaupum hjá mér, keypti ég einum miða of mikið á stórsýninguna Der Rosenkavalier þann 6. maí næstkomandi.
Býð ég því lesendum þessarar síðu að kaupa þennan auka miða af mér á gjafaverði. Hér er um að ræða einstakt tækifæri til þess að sjá þessa léttu og skemmtilegu sýningu í frábæru óperuhúsi. Sætin eru á besta stað, 1. Ring link, Türe 3, enda voru þau pöntuð fyrir mörgum mörgum mánuðum.
Innifalið í miðanum er:
- Freyðivín og Bjór á Schellingstrasse 105 fyrir sýningu þar sem Sérfræðingurinn fer yfir söguþráðin og helstu persónur verða kynntar til leiks. Valin atriði verða sýnd í DVD gæðum.
- Miðaeigandi nýtur sérfræðiþekkingar Sérfræðingsins meðan á sýningu stendur og getur ávallt fengið útskýringar á flóknum atriðum.
- Eftir sýningu býðst hinum heppna miðaeiganda að koma með á Bæverska knæpu, snæða þar svínahaxa (með súrkáli) og drekka bjór.
Áhugasamir sendi mér tölvupóst með tilboði í þennan miða.
