Archive for apríl, 2007

Bayern München - Hamborg SV

Á laugardaginn fór ég, ásamt tengdapabba og 68.998 öðrum, á Völlinn og horfði á þegar mínir menn tóku á móti Hamborg SV.

kahn1.jpg

Það er skemmst frá því að segja að mínir menn stóðu undir væntingum og léku eins og þeir væri að sjá bolta í fyrsta sinn. Þá sjaldan að þeim datt í hug að sparka honum í átt að markinu, þá fór hann langt framhjá eða beint í markvörðinn.

Ég var feginn að vera staddur í efstu stúku þegar fauk í markvörðu bayern, Oliver Kahn.

kahn2.jpg

Hann hljóp út á miðjan völl og gelti og urraði eins og hundur á sína menn. Ekki þarf að taka fram að hann sjálfur sýndi stórleik jafnvel þó svo hann hafi ekki alltaf náð að verja.

Þrátt fyrir þennan ósigur bayern (1-2) þá er óhætt að segja að þeira eiga flottan heimavöll. Þar er hægt að fá bæði bjór og bratwurst, þannig að nú þurfa þeir bara að læra að sparka bolta og þá gæti dæmið gengið upp.

Athugasemdir (5)

Hofbräu Maibock

Bjór dagsins er að þessu sinni Maibock sem kemur frá Hofbräu brugghúsinu.

Hofbräu brugghúsið er einna þekktast fyrir að eiga og reka eina frægustu knæpu í heiminum, Hofbräuhaus. Hofbräuhaus laðar að sér nánast alla ferðamenn sem koma til München. Einmitt þess vegna er þetta ekki skemmtilegasti staðurinn til að sitja að drykkju því það er venjulega ekki hægt að þverfóta fyrir útlendingum.
En það er vissulega gaman að kíkja þarna inn. Skemmtilegt er t.d. að sjá skápana þar sem vönustu drykkjumennirnir geyma krúsirnar sínar. Vanir drykkjumenn eiga að sjálfsögðu sína eigin krús og skáp. Þar bíður krúsin spennt eftir þér þegar mætt er til drykkju, tilbúin að sinna þér næstu tímana. Eftir góða drykkju fer svo krúsin beint í skápinn, og losnar þar með við það að verða þrifin.

Hofbräu brugghúsið var stofnað árið 1589 og er því orðið rúmlega 400 ára gamalt. Eins og ansi víða hér í nágreni er því komin þónokkur reynsla í bruggun. Sá sem stofnaði brugghúsið var Wilhelm V, Herzog von Bayern (1579-1597). Sagan segir að hann hafi verið með mjög þyrst og kröfuhart þjónustufólk sem var ekki sátt við þann bjór sem fékkst í München. Til að byrja með lét Wilhelm því flytja inn bjór frá Einbeck, en ákvað svo í framhaldinu að byggja sitt eigið brugghús.

Í dag er Hofbräu eitt af stóru brugghúsunum í München og jafnframt eru þeir með, að ég held, næst stærsta tjaldið á Oktoberfest. Úti um alla borg eru knæpur og bjórgarðar sem selja HB bjór.

Hofbräu Maibock bjórinn er eins og nafnið bendir til bock bjór, þ.e. sterkur lager bjór. Að styrkleika er hann 7.2%. HB Maibock er elsti bock bjórinn í München. Saga hans nær aftur til 1614. Þá var Hofbräu brugghúsið komið á fullt skrið en menn kvörtuðu undan að fá ekki gamla góða sterka bjórinn sinn frá Einbeck (þaðan sem bock bjórinn er upprunninn). Það var einhvern veginn ekki nægur styrkur í því sem HB menn voru að brugga. Því var brugðið á það ráð að herða áfengisprósentuna aðeins með því að brugga Maibock bjór.

Maibock bjórinn er að sjálfsögðu bruggaður eftir þýsku hreinleikalögunum. Það kemur líka strax í ljós þegar honum er hellt að þarna er ekkert rusl á ferð. Froðan nær nákvæmlega uppá glasbrún eins og hjá öllum betri bjórum.

maibock.jpg

Á myndinni sést að Maibock bjórinn nokkuð rauðleitur. Eins og með marga bock bjóra þá er hann örlítið rammur. Ríkt kryddbragð er af bjórnum sem á köflum minnir örlítið á gammel dansk. Þrátt fyrir nokkurn styrk (7.2%) þá vottar ekki fyrir áfengisbragði. Bjórinn er hins vegar nokkuð sætur, sem gefur honum ákveðna konfekt áferð. Eins og oft áður þá rennur bjórinn ljúflega niður og skilur eftir sig löngun í annan.

Athugasemdir (2)

Í sól og sumaryl

Mikið er nú ljúft að geta setið úti á svölum í 20 stiga hita með bjór í byrjun apríl.

Sumarið er greinilega komið til að vera hér í Bæjaralandi. Öruggasta merkið er að fólk (þ.e. eldri karlar) er farið að hópast í almenningsgarðana hérna til þess að geta legið þar nakið.

Athugasemdir (6)