Archive for júlí, 2007

Stilli Vebba í heimsókn

Um daginn kíkti í heimsókn fyrrverandi vinnufélaginn og Hróarskeldufarinn Vilhjálmur Stefánsson. Hann staldraði í nokkra daga hér í menningarborginni og undirbjó sig andlega sem og líkamlega fyrir hina blautu Hróarskeldurhátíð (sem hefur einmitt aldrei verið blautari heldur en núna).

Þrátt fyrir knappan tíma sem við höfðum náðum við þó öllu því helsta sem München og nágrenni býður uppá.

Við klifum Zugspitze sem er hæsta fjall Þýskalands.

stilli1.jpg

Þarna uppi eru svo eitt af aðal skíðasvæðum þjóðverja, en því miður var ekki nógu mikill snjór til að skíða niður.

stilli3.jpg

Þegar upp á topp var komið tók á móti okkur sá bjórgarður í Þýskalandi sem er í mestri hæð

stilli2.jpg

Hér sést Villi virða fyrir sér stórkostlegt útsýnið alla leið yfir til Ítalíu. Það er ekki oft sem maður getur séð Þýskaland, Austurríki og Ítalíu frá einum og sama punktinum

stilli4.jpg

Við kíktum svo aðeins á Schloss Neuschwanstein

stilli5.jpg

Einnig var komið við í Andechs klaustrinu

stilli6.jpg

og drukkinn bjór

stilli7.jpg

Dagur í Salzburg er svo eitthvað sem allir þurfa að prófa

stilli8.jpg


stilli9.jpg

Því miður náði ég ekki fleiru markverðu á mynd.
Við fórum svo auðvitað í bjórgarð þar sem Villi heillaðist af hreinleikaræktaða bjórnum og vel saltaðri brezu með obazda. Ég á heldur engar myndir af því þegar góðkunningi Villa, Stilli Vebba, kíkti í stutta en snarpa heimsókn. Kannski að Villi eigi einhverjar myndir af honum.

Villi flaug svo héðan beint á Hróarskeldu þar sem hann svaf í þvagblandaðri leðju næstu daga á eftir. Myndir þaðan má finna hér.

Athugasemdir (3)