Archive for nóvember, 2007

Unnar kjötvörur

Svona eiga þeir félagar skinka og salami að líta út (3 tegundir af skinku og 6 af salami):

kjot.jpg

Af einhverjum orsökum er þetta kallað skinka á íslandi:

Skinkudrulla

Svona samanpressaða saltdrullu veit ég ekki hvort hægt sé yfir höfuð að kaupa í München. Allavega fæst hún ekki hjá lókal slátraranum mínum.

Það skrýtnasta af öllu er svo að skinkan sem ég kaupi hérna úti, kostar miklu minna heldur en sú íslenska.

Athugasemdir (9)

Sjónlínan - Gleraugnaverslun

Ég vil endilega vekja athygli allra sjóndapra á því að ný og glæsileg gleraugnaverslun er búin að opna í hjarta Hafnarfjarðar. Verslunin heitir Sjónlínan og eru eigendur hennar Pétur bróðir og konan hans.

Sjá nánar á stórglæsilegri heimasíðu Sjónlínunnar

Athugasemdir (3)

Das ist einfach zu laut!

Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt glæsilega tónleika í gærkvöldi hér í München. Heiðurskonsúll Íslands í München, Friederich N. Schwarz, bauð íslendingunum í borginni þangað auk þess sem hann var með flotta móttöku eftir tónleikana. Á dagskrá voru íslensk lög auk einnar svítu eftir Carl Nielsen.

Þar sem Rúnar bróðir leikur með hljómsveitinni þótti ástæða til að fagna hressilega eftir tónleikana. Ég tók því frá borð á ítölskum veitingastað hér í nánd þangað sem helstu þungaviktarmenn úr hljómsveitinni (horn + slagverk) og kjarninn úr SÍMON-i mætti. Þegar lokaði þar var svo haldið heim á Schellingstrasse þar sem kassi af Agustiner bjór beið örlaga sinna.

bjor.jpg

Þegar leikar stóðu sem hæst og diskurinn “Björgvin og Sinfó” var rétt farinn að hitna kom elskulegur nágranni minn sem býr fyrir ofan mig og þrumaði yfir mig. Kjarninn í þeirri ræðu var í stuttu máli:

Das ist einfach zu laut!

Það er nefnilega þannig að ef að þú ert þýskur, nágranninn fyrir neðan þig hefur ekki haldið alvöru hávaða partý í meira en 9 mánuði, þú ert á aldrinum (25-30) og átt ekki börn, þá verður þú að komast í rúmið á laugardagskvöldi í síðasta lagi klukkan eitt eftir miðnætti, annars gætir þú átt yfir höfði þér að sofa frameftir daginn eftir… og það á sunnudegi. Það er eitthvað sem maður vill ekki lenda í.

En kvöldið var gott og allir skemmtu sér vel (nema auðvitað vansvefta fólkið fyrir ofan mig). Hugsanlega voru þó einhverjir þreyttir sem þurftu að vakna 5:30 til að taka rútu áleiðis heim.

Athugasemdir (4)