Þáttur 127. Wer erschoß Asmy?
Loksins fékk ég fleiri Derrick þætti á í hús.
Betra sjónvarpsefni þekkist auðvitað ekki.
Loksins fékk ég fleiri Derrick þætti á í hús.
Betra sjónvarpsefni þekkist auðvitað ekki.
Við Dabbi skelltum okkur á skíði í gær til Kaltenbach. Undanfarið hefur mikið snjóað í Austurríki þannig að skíðasvæðin eru mörg hver búin að opna.
Skíðafærið var eins og best verður á kosið auk þess sem brekkurnar voru svo gott sem tómar. Það eina sem hefði getað verið betra var dagsformið mitt… en lappirnar voru hissa á að vera mættar í skíðaskó og áttu alls ekki von á því að þurfa erfiða heildan dag í brekkunum. Það vill til að það eru næg verkefni sem hægt er að snúa sér að þegar lappirnar gefast upp.
Nokkrar myndir frá því í gær:
Mbl.is flytur þau stórtíðindi að íbúar Þýskalands, Austurríkis og Sviss ætli að slökkva ljósin heima hjá sér klukkan átta í kvöld.
Ég get ekki séð að þetta breyti neinu. Það eru alltaf öll ljós slökkt hvort eða er, það tímir enginn að láta ljósin loga. Stundum held ég að það sé rafmagnslaust í hverfinu mínu, en svo stuttu síðar man ég að í kringum mig búa hagsýnir/nískir Þjóðverjar (og blankir Tyrkir) sem láta birtuna af næsta ljósastaur nægja fyrir heimilið uns birtir næsta dag.
Íslendingafélagið í München hélt venju samkvæmt Fullveldisdaginn hátíðlegan. Í þetta skiptið lá leiðin á Weisses Brauhaus sem er staðsett í hjarta borgarinnar, rétt við Marienplatz.
Ekki bara býður brugghúsið upp á besta hveitibjór í heimi, heldur er maturinn alveg stórkostlegur.
Hér gefur á að líta svínakjötshleifinn í Aventinusarbjórsósunni (auðvitað með kartöfluknödeli) sem ég borðaði.
Því miður náði ég ekki mynd af weißbierknödelinu sem Formaðurinn át, en ég held að ég hafi aldrei séð jafn girnilegt knödel á ævinni. Ég náði hins vegar fínni mynd af svíninu sem Davíð át
Takið eftir hvernig svín og knödel nánast renna saman í eitt…
Eftir staðgóðan hádegismat og einn bjór var haldið á jólamarkaðinn þar sem áhugasamir gátu fengið sér smá Glühwein að drekka.
Eftir stutt stopp í Dallmayr þar sem keyptar voru unnar kjötvörur hófst svo afmælisveisla hjá Davíð. Þar var boðið var upp á Agustiner bjórtunnu sem lagðist mjög vel í gesti.
Davíð fær hrós fyrir góða veislu. Sérstaklega vil ég minnast á pinnamatinn, sem var virkilega framúrskarandi!