Archive for maí, 2008

Egilshöll

Nú er spurning hvort að Egilshöllin eða Laugardalshöllin henti betur fyrir Júróvisjón 2009? Eigum við kannski að byggja nýja höll fyrir verkefnið? Hverjir munu vera kynnar? Það er allavega ljóst að það er mikið starf fyrir höndum um leið og við vinnum þetta á næsta laugardag.

Athugasemdir (3)

Vín og Bratislava

Um helgina skelltum við Ásta okkur til Vínar. Tilefnið var að Kammerkór Hafnarfjarðar var kominn þangað til tónleikahalds.

Vín tók vel á móti okkur, veðrið var frábært og gaman að hitta kórinn.

holl.jpg

Á laugardaginn hélt kórinn tónleika í Waisenhauskirkjunni. Þangað mættum við ásamt fullt af fólki og hlustuðum á tónleika.

Um kvöldið fórum við ásamt Finnboga og Davíð á veitingastað sem heitir Zum Narrischen Kastanienbaum. Þarna fékk ég bestu Zwiebelrostbraten sem ég hef smakkað hingað til. Þarna sátum við úti í góða veðrinu þangað til ekkert pláss var lengur fyrir mat eða drykk.

knolli.jpg

Eins og sést er Davíð himinlifandi með Svínakjötið og Semmelknödelið sitt sem hann pantaði sér.

Á sunnudeginum skruppum við Ásta yfir til Bratislava í Slóvakíu. Þangað var ekki nema klukkutíma akstur frá Vín.

slovakia.jpg

Eins og fleiri Austur-Evrópskar borgir þá er miðbærinn í Bratislava mjög fallegur og mikið gert út á ferðmenn. Það þarf hins vegar ekki að keyra langt út fyrir hann til að komast í subbuleg og niðurnídd hverfi.

skodi.jpg

Bestu bílana finnur maður alltaf eftir því sem austar dregur.

pestin.jpg

Pestasúlan í Bratislava.

Á sunnudagskvöldinu borðaði hópurinn saman á Heurigen Feuerwehr-Wagner. Heurigen er austurríska útgáfan af þýskum bjórgarði, nema í staðinn fyrir að maður drekki bjór úr líterskrúsum, þá drekkur maður vín úr krúsum (þó bara úr 0.3l dvergkrúsum). Eftir frábæran mat og nokkra lítra af víni (og alls ekki svo marga snafsa) ákvað ég að kaupa mér flösku til að taka með heim. Áður en ég vissi af var ég kominn djúpt ofan í einhvern kaldan og dimman kjallara í Austurríki (óvíða er einmitt meiri kjallaramenning en í Austurríki). Mér tókst þó að komast upp aftur og hafði með mér tvær flöskur af Nußberger Rheinriesling Kabinett frá 1987. Ég efast þó um að ég muni nokkurn tíman tíma að opna þessar flöskur.

Á mánudeginum stóð ég fyrir gönguferð um miðborgina þar sem ég stamaði fróleiksmolum upp úr Lonely Planet bók .

guide.jpg

Rýnt í kortið til að fá nákvæma staðsetningu.

Gönguferðin endaði svo á Hotel Sacher þar sem við snæddum hina frægu Sacher tertu með rjóma í sínu náttúrulega umhverfi.

Athugasemdir (3)