Archive for júlí, 2008

Auto & Technik MUSEUM SINSHEIM

Á dögunum brá stjórn SÍMON-ar sér í bílferð norður í land til að skoða tækniminjasafnið í Sinsheim. Sinsheim er lítill bær ekki langt frá Frankfurt og er líklegast ekki þekktur fyrir neitt annað en þetta safn.

Helsti tilgangur ferðarinnar var að skoða Concorde þotuna sem safnið eignaðist eftir að þeim var lagt.

Concorde þotan er staðsett ofan á Snitzel veitingastað safnsins

con1.jpg

Engar tölvur sem geta klikkað þarna, bara alvöru takkar til að ýta á

con2.jpg

Þarna er líka eitt eintak af rússneskri Concorde eftirlíkingu sem heitir Tupolev Tu-144

con3.jpg

Traust víravirki í rússnesku þotunni

con7.jpg

Hér stend ég við brynvarðan bíl af svipuðu módeli og B. Bjarnason hefur verið að skoða fyrir íslensku óeirðalögregluna.

con4.jpg

Hér líka annað módel sem gæti hentað íslenskum aðstæðum

con5.jpg

Þarna voru líka stórglæsilegir bílar

con6.jpg

Þessi var með sveif svipaðri þeirri og fylgdi með Lödu 1200

con8.jpg

Athugasemdir (1)

Bjórtíðindi - Oktoberfest 2008

Ég vil benda öllum þeim sem ætla að koma á Oktoberfest í haust að kíkja á þessa grein hér http://www.ganz-muenchen.de/oktoberfest/preise/bierpreis.html.

Inntakið í greininni er að verðið á líterskrúsinni í ár verður á bilinu 7.8-8.3 EUR. Þetta er hækkun um meira en 5% frá því í fyrra.
Fyrir okkur sem finnst gaman að fá sér eina krús eftir vinnu getur þetta þýtt auka kostnað upp á 3-4 EUR á einu kvöldi miðað við síðasta ár. Ef við summum það upp yfir alla hátíðina þá getur þetta verið aukakostnaður upp á tugi evra sem skellur á mann.

Athugasemdir (2)