Sögur af Mjaðarvöllum

Auto & Technik MUSEUM SINSHEIM
Á dögunum brá stjórn SÍMON-ar sér í bílferð norður í land til að skoða tækniminjasafnið í Sinsheim. Sinsheim er lítill bær ekki langt frá Frankfurt og er líklegast ekki þekktur fyrir neitt annað en þetta safn.

Helsti tilgangur ferðarinnar var að skoða Concorde þotuna sem safnið eignaðist eftir að þeim var lagt.

Concorde þotan er staðsett ofan á Snitzel veitingastað safnsins

Engar tölvur sem geta klikkað þarna, bara alvöru takkar til að ýta á

Þarna er líka eitt eintak af rússneskri Concorde eftirlíkingu sem heitir Tupolev Tu-144

Traust víravirki í rússnesku þotunni

Hér stend ég við brynvarðan bíl af svipuðu módeli og B. Bjarnason hefur verið að skoða fyrir íslensku óeirðalögregluna.

Hér líka annað módel sem gæti hentað íslenskum aðstæðum

Þarna voru líka stórglæsilegir bílar

Þessi var með sveif svipaðri þeirri og fylgdi með Lödu 1200

Bjórtíðindi - Oktoberfest 2008
Ég vil benda öllum þeim sem ætla að koma á Oktoberfest í haust að kíkja á þessa grein hér http://www.ganz-muenchen.de/oktoberfest/preise/bierpreis.html.

Inntakið í greininni er að verðið á líterskrúsinni í ár verður á bilinu 7.8-8.3 EUR. Þetta er hækkun um meira en 5% frá því í fyrra.

Fyrir okkur sem finnst gaman að fá sér eina krús eftir vinnu getur þetta þýtt auka kostnað upp á 3-4 EUR á einu kvöldi miðað við síðasta ár. Ef við summum það upp yfir alla hátíðina þá getur þetta verið aukakostnaður upp á tugi evra sem skellur á mann.

Snúinn niður með varnarúða - á stolnu hjóli
Ég lenti í þeirri skemmtilegu reynslu núna áðan að vera stoppaður á hjólinu af þungvopnaðri þýskri leynilögreglu. Ekki bara var ég nýbúinn að fara yfir á rauðu ljósi, heldur var ég líka að taka fram úr gömlum kalli á hjóli sem fór allt of hægt, ég var því úti á miðri götu í stað þess að halda mig hæfilega til hliðar.

Hinn meinti glæpur minn var þó ekki brot gegn umferðarlögum heldur þótti þeim grunsamlegt að karlmaður af minni stærðargráðu væri á svona litlu (ákaflega karlmannlegu) kvennmannshjóli og hjólið hlyti því að vera stolið!

Eftir að ég lék leikinn “Do you speak english?” þá varð þetta allt miklu þvingaðra, því hvorugt þeirra talaði ensku. Þau gátu þó sagt mér að þau væru að leita að stolnum hjólum.  Þau náðu líka að stama upp úr sér að maður ætti að ganga með vegabréf á sér en eina skilríkið mitt var 20 EUR seðill. Ég veit hins vegar ekki hvort það sé algengt að múta löggunni hérna svo ég beið með það. Það var þó ánægjulegt að fá smá þýskt uppeldi. Hér eftir veit ég að vegabréfið á að vera í vasanum.

Það var áhugavert fylgjast með lögreglunni að störfum. Þau skoðuðu hjólið hátt og lágt, tóku niður serial númer, opnuðu og lokuðu lásnum á hjólinu, hringdu símtöl, kölluðu í talstöðina og skrifuðu á einhverja miða. Eftir um það bil 10 mínútur fékkst það á hreint að hið stolna hjól var alls ekki stolið. Ég var því laus undan armi laganna, eða eins og hin hundtrygga aðstoðarkona sagði á reiprennandi ensku: “OK”.

Því miður voru þetta ekki félagarnir Derrick og Harry Klein. Þeir hefði aldrei látið sjá sig á Hondu-jazz leynilögreglubíl.

Egilshöll
Nú er spurning hvort að Egilshöllin eða Laugardalshöllin henti betur fyrir Júróvisjón 2009? Eigum við kannski að byggja nýja höll fyrir verkefnið?  Hverjir munu vera kynnar? Það er allavega ljóst að það er mikið starf fyrir höndum um leið og við vinnum þetta á næsta laugardag.

Vín og Bratislava
Um helgina skelltum við Ásta okkur til Vínar. Tilefnið var að Kammerkór Hafnarfjarðar var kominn þangað til tónleikahalds.

Vín tók vel á móti okkur, veðrið var frábært og gaman að hitta kórinn.

Á laugardaginn hélt kórinn tónleika í Waisenhauskirkjunni. Þangað mættum við ásamt fullt af fólki og hlustuðum á tónleika.

Um kvöldið fórum við ásamt Finnboga og Davíð á veitingastað sem heitir Zum Narrischen Kastanienbaum. Þarna fékk ég bestu Zwiebelrostbraten sem ég hef smakkað hingað til. Þarna sátum við úti í góða veðrinu þangað til ekkert pláss var lengur fyrir mat eða drykk.

Eins og sést er Davíð himinlifandi með Svínakjötið og Semmelknödelið sitt sem hann pantaði sér.

Á sunnudeginum skruppum við Ásta yfir til Bratislava í Slóvakíu. Þangað var ekki nema klukkutíma akstur frá Vín.

Eins og fleiri Austur-Evrópskar borgir þá er miðbærinn í Bratislava mjög fallegur og mikið gert út á ferðmenn. Það þarf hins vegar ekki að keyra langt út fyrir hann til að komast í subbuleg og niðurnídd hverfi.

Bestu bílana finnur maður alltaf eftir því sem austar dregur.

Pestasúlan í Bratislava.

Á sunnudagskvöldinu borðaði hópurinn saman á Heurigen Feuerwehr-Wagner. Heurigen er austurríska útgáfan af þýskum bjórgarði, nema í staðinn fyrir að maður drekki bjór úr líterskrúsum, þá drekkur maður vín úr krúsum (þó bara úr 0.3l dvergkrúsum). Eftir frábæran mat og nokkra lítra af víni (og alls ekki svo marga snafsa) ákvað ég að kaupa mér flösku til að taka með heim. Áður en ég vissi af var ég kominn djúpt ofan í einhvern kaldan og dimman kjallara í Austurríki (óvíða er einmitt meiri kjallaramenning en í Austurríki). Mér tókst þó að komast upp aftur og hafði með mér tvær flöskur af Nußberger Rheinriesling Kabinett frá 1987. Ég efast þó um að ég muni nokkurn tíman tíma að opna þessar flöskur.

Á mánudeginum stóð ég fyrir gönguferð um miðborgina þar sem ég stamaði fróleiksmolum upp úr Lonely Planet bók  .

Rýnt í kortið til að fá nákvæma staðsetningu.

Gönguferðin endaði svo á Hotel Sacher þar sem við snæddum hina frægu Sacher tertu með rjóma í sínu náttúrulega umhverfi.

Þýskur húmor
Skemmtileg falin myndavél, ættuð frá Þýskalandi.

<object width="425" height="355">

<param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/AW5Ta_-Yvyw&hl=en"></param>
<param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/AW5Ta_-Yvyw&hl=en" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="355"></embed></object>

Með lögum skal land byggja
…og bjór brugga.

Eins og ég hef minnst á áður þá er ansi mikið af lögum, reglum og bönnum hjá Þjóðverjum.

Það sem mér finnst einna skemmtilegast er hvað samfélagið allt tekur virkan þátt í þessu. Ekki bara passar fólk upp á sjálft sig, heldur eyðir það miklum tíma í að passa að allt fólkið í kringum sig brjóti engar reglur, boð eða bönn. Þetta fólk myndar sjálfboðaliðalögregluna sem sér um að veita manni allt það semfélagslega aðhald sem þörf er á í stóru samfélagi.

Ef ég til dæmis lendi í því að hjóla ljóslaus að kvöldi til, þá líður stuttur tími þangað til einhver öskrar blíðlega á mig og bendir mér á þessa dauðasynd. Þarna grípur samfélagið tímanlega inní og kippir mér snarlega úr umferð svo ég verði hvorki sjálfum mér né öðrum til ama.

Þeir sem sem búa í fjölbýlishúsi vita að það verða allir að leggjast á eitt svo sambýlið gangi snuðrulaust fyrir sig. Til að tryggja þetta hanga 5 miðar á þeirri stuttu leið sem liggur frá dyrunum mínum út úr húsinu.

1. München glímir við flokkunarvandamál

Hér er talað um hvað borgin glímir við mikið flokkunarvandamál á rusli. Þetta fær mann til þess að fá nagandi samviskubit flokka ruslið betur þegar maður fer út í ruslagám

2. Dyrnar eiga að vera lokaðar

Hér er maður einfaldlega minntur á að hurðin eigi að vera lokuð. Þetta er eðlileg krafa, enda eru hurðir ekki gerðar til þess að standa opnar.

3. Lokið dyrunum hljóðlega

Við viljum alls engar hurðaskelli í okkar fjölbýlishúsi. Þarna fær maður létta áminningu svo maður gleymi sér ekki í hita leiksins og skelli á eftir sér. Oftar en ekki hefur þessi miði bjargað mér frá því að skella harkalega á eftir mér (eins og ég er vanur).

4. Stóra flokkunarmálið

Um daginn fékk ég bréf frá hússtjórninni þar sem ég var minntur á að flokka ruslið mitt betur. Þarna uppgvötaði ég að ég hafði verið að henda tómum niðursuðudósum í ruslið, þvert á allar reglugerðir. Í dag fara þær í sér poka sem ég rölti svo með í grenndargám

5. Enga stubba í garðinn

Hér er verið að ítreka að garðurinn sé enginn öskubakki. Sumir síreykjandi nágrannar mínir hafa leikið þann ljóta leik að henda stubbunum beint út í garð eftir notkun.

Allir þessu litlu miðar valda því að ég verð smátt og smátt betri þegn. Maður hættir að vera sjálfselskur og grunnhygginn og fer að hugsa meira um fólkið í kringum sig.

Altenmünster - Urig Würzig
Bjór dagsins er að þessu sinni Altenmünster - Urig Würzig sem kemur frá Allgäuer brugghúsinu sem er staðsett í bænum Kempten, suðvestur af München.

Brugghúsið á sér rúmlega 600 ára sögu, stofnað árið 1394 af Keltum sem brugguðu sér sterkan bjór til að ylja sér með (og svala sárasta þorstanum).

Á hverju ári heldur brugghúsið hátíðarviku þar sem menn klæðast Lederhosen og gestir koma víða að og drekka í sig menninguna.

Af Altenmünster bjórunum eru bruggaðar 6 gerðir:

Urig Würzig

Hopfig Herb

Jubelbier

Maibock

Winterbier

Hefe Weissbier

Brugghúsið bruggar reyndar fleiri tegundir, en þær eru ekki bruggaðar undir Altenmünster merkinu.

Bjór dagsins er eins og áður segir Urig Würzig . Þetta er ljós lager bjór, 4.9% að styrkleika. Brugghúsið kynnir bjórinn með því að þetta sé akkúrat eins og sá bjór sem bruggaranum líkar. Hver sá sem hefur séð bruggmeistara sem starfar í Bæjaralandi veit að þetta eru góð meðmæli.

Þegar bjórnum er hellt í glas kemur í ljós falleg froða sem er samt nokkuð laus í sér. Vegna þess er hún er hún frekar fljót að falla aftur til jarðar. Hún fellur þó ekki svo harkalega niður að bjórinn líti út eins og bjór í veitingahúsi/knæpu á Íslandi.

Við fyrsta sopa kemur strax í ljós að hér er á ferðinni góður alvöru bjór. Hann er nokkuð bragðmildur en býður þó upp á örlítið dekkra bragð en margir ljósir bjórar sem maður drekkur. Gosið er nokkuð fínt í sér og minnir í margt á pilsner froðu sem gefur bjórnum skemmtilegt einkenni. Ef eitthvað bragð stendur sérstaklega uppúr, þá eru það humlarnir.

Eftirbragðið er örlítið rammt án þess þó að skemma fyrir, nema síður sé. Fyrsti sopinn kallar strax á þann næsta og þarnæsta. Skyndilega þarf nýja fyllingu á glasið.

Með þessum bjór get ég hiklaust mælt með. Hann er léttur í áfengisprósentu og hentar því eflaust mjög vel til magndrykkju (> 4 lítrar). Þar sem hann er bruggaður samkvæmt þýsku hreinleikalögunum frá 1516 þá geri ég ekki ráð fyrir öðru en maður stígi óskaddaður frá borði daginn eftir.

Starkbierfest - Nockherberg
Á síðasta föstudag klifu félagsmenn SÍMON-ar Nockherberg og skelltu í sig nokkrum krúsum af dýrindis <a href="http://brynjar.askja.org/archives/116"Salvator Paulaner sterkbjór.

Paulaner hljómsveitin var á staðnum og flutti alla helstu Oktoberfest slagarana. Ólíkt mörgum öðrum bjórböndum á svæðinu þá eru þeir með ansi góðan túbuleikara. Ég náði hér smá skoti þegar hann leikur Klarinettu polkann. Myndbandið nær  hápunkti eftir um það bil 28 sekúndur, þegar afgreiðsludama labbar framhjá með 15 líterskrúsir af Salvator.

<object width="425" height="355">

<param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/paz6kphPv9I"></param>
<param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/paz6kphPv9I" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="355"></embed></object>

Því miður get ég ekki boðið upp á neinar aðrar myndir þar sem myndavélin mín var eitthvað óvenju hreyfð allt kvöldið og allar myndirnar mislukkaðar. Líklegast er vélin eitthvað biluð.

Loksins komið sumar
Sumarið brast loks á hér á Mjaðarvöllum um helgina. Því var fagnað á viðeigandi hátt.

Glöggir lesendur taka kannski eftir því að myndin er tekin í höfuðstöðvunum